Áætlað er að innlendir og erlendir ferðamenn hafi eytt 1.900 milljónum króna í Vestmannaeyjum á árinu 2012. Þetta kemur fram í markaðskönnun Rannsóknar og ráðgjafar ferðaþjónustunnar. Fram kemur að Íslendingum sem heimsóttu Vestmannaeyjar hafi fjölgað um 77 prósent og erlendum ferðamönnum um 350 prósent frá 2004, aðallega vegna Landeyjahafnar.