Á síðasta bæjarstjórnarfundi voru samþykkt oddvitaskipti hjá Vestmannaeyjalistanum. Tveir reyndir bæjarfulltrúar hafa yfirgefið hópinn og aðrir komið inn í þeirra stað. Skv. sveitarstjórnarlögum kemur það núna í hlut Kristínar Jóhannsdóttur að taka sæti sem næsti aðalmaður og hinn gamalreyndi Stefán Ó Jónasson verður okkar fyrsti varamaður. Það þýðir að minnihlutinn í bæjarstjórn Vestmannaeyja er eingöngu skipaður konum. Þetta þýðir einnig að meirihluti bæjarfulltrúa í Vestmannaeyjum eru konur.