Nú er stutt til kosninga. Í öllum könnunum vekur mesta athygli að fylgi Sjálfstæðisflokksins er á hraðri niðurleið svo annað eins hefur ekki gerst fyrr í sögunni. Þegar svo er komið veltir maður fyrir sér hvað þessu veldur. Ég held reyndar að skýringarnar séu tiltölulega einfaldar. Ég held að þjóðin sé loks búin að sjá í gegn um Sjálfstæðisflokkinn. Þegar almenningur í landinu spyr sig spurningarinnar: „Hvers vegna kýs ég ekki Sjálfstæðisflokkinn” ? láta svörin ekki á sér stada því þau blasa hvarvetna við.