Erlingur Richardsson, þjálfari karlaliðs ÍBV, liggur enn undir feldi og veltir fyrir sér tilboði frá austurríska A-deildarliðinu SG Insignis Westwien um að gerast þjálfari þess á næsta keppnistímabili. Rúm vika er liðin síðan félagið hafði samband við Erling. „Ég er enn að velta þessu fyrir mér og reikna ekki með að svara af eða á fyrr en eftir næstu helgi,“ sagði Erlingur í samtali við Morgunblaðið í gær.