Pæjumót TM í Vestmannaeyjum verður haldið dagana 12.- 15. júní. Pæjumót TM í Eyjum og á Siglufirði eru haldin árlega og eru fyrir knattspyrnustelpur í 5.6.7. og 8. flokki. „Pæjumótin eru fjörug og skemmtileg og eru hvatning fyrir ungar knattspyrnustelpur,“ segir Sara Björk Gunnarsdóttir fyrrum fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu.