Það ætlar að reynast Eyjamönnum erfitt að nýta færin. Í kvöld tók ÍBV á móti Víkingi frá Ólafsvík og miðað við gang mála í fyrri hálfleik, þá hefðu Eyjamenn átt að skora í það minnsta tvö mörk, jafnvel þrjú. Á sama tíma áttu gestirnir ekki skot að marki ÍBV. Fyrsta skottilraunin hjá þeim kom á 56. mínútu. Víkingar náðu einu skoti á markið, sem dugði til að jafna metin. Á sama tíma hittu Eyjamenn markið fimm sinnum og skoruðu eitt mark. Niðurstaðan var 1:1 jafntefli í annars frekar leiðinlegum leik.