Eins og knattspyrnuunnendur vita, þá fagnaði KR Íslandsmeistaratitli á sunnudaginn. Einn Eyjamaður er í leikmannahópi KR-inga, Andri Ólafsson, fyrrum fyrirliði ÍBV. Andri varð hins vegar fyrir meiðslum á undirbúningstímabilinu sem hafa haldið honum utan vallar í allt sumar. Andri spilaði því ekki eina einustu mínútu með Íslandsmeisturunum í Íslandsmótinu en fær engu að síður gullpening um hálsinn eins og aðrir leikmenn.