Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í vikunni sem leið án þess þó að um hafi verið að ræða alverleg mál. Skemmtanahald helgarinnar gekk með ágætum en eitthvað var þó um stympingar á milli gesta öldurhúsanna án þess þó að meiðsl hafi hlotist af eða lögð fram kæra. Eitt fíkniefnamál kom upp í vikunni en að morgni 6. október sl. var lögreglu tilkynnt um að ætluð fíkniefni hafi fundist inni á salerni í afgreiðslu Herjólfs. Er talið að þarna hafi verið um að ræða amfetamín um 1 gr. Ekki er vitað hver er eigandi efnanna.