�?að var spenna í loftinu í Höllinni á þriðjudag þar sem mættir voru menn frá Stöð 2 til að taka upp atriði fyrir þáttinn Ísland Got Talent sem fer í loftið eftir áramót. Mættur var nokkur fjöldi, krakkar og unglingar sem töldu sig hafa eitthvað það fram að færa sem getur heillað dómara keppninnar. Markmiðið er að komast áfram og taka þátt í lokakeppninni og til mikils er að vinna. Verðlaunin fyrir fyrsta sætið eru litlar 10 milljónir króna.
Jakob Halldórsson, leikstjóri og Ingvar �?órisson, myndatökumaður, höfðu komið sér fyrir á efri hæðinni í Höllinni þar sem listamennirnir fengu að spreyta sig fyrir framan myndavélar og ljós. Voru sumir feimnari en aðrir eins og gengur. Áður höfðu þeir verið á Selfossi, Akureyri, Höfn, Egilsstöðum, Neskaupstað, Ísafirði, Patreksfirði, Stykkishólmi og um næstu helgi verða upptökur í Reykjavík.
Halldór var mjög ánægður með þátttökuna hérna. �??Hún hefur verið nokkuð góð út um land en við gerum ráð fyrir að taka upp 250 atriði úti á landi og um 750 í Reykjavík. �?átttakan í Vestmannaeyjum var góð, um 30 atriði sem er svipað og á Akureyri og við sáum nokkra sterka hópa og einstaklinga. Hvort þeir eiga svo eftir að komast áfram veit ég ekki,�?? sagði Jakob en taldi það alls ekki útilokað.
Got Talent þættirnir hafa farið eins og eldur í sinu um allan heim en þar getur fólk sungið, dansað, sýnt töfrabrögð eða bara hvað sem er. Galdurinn er bara að heilla dómara og áhorfendur. Hvort Eyjamenn eiga eftir að ná árangri kemur í ljós á Stöð 2 eftir áramót.