Skotið úr loftriffli á hús
Lögreglan hafði í mörg horn að líta í síðustu viku og um helgina. Eitthvað var um pústra í kringum skemmtanahald helgarinnar og hefur þegar ein líkamsárás verið kærð. Annars fór skemmtanahaldið þokkalega fram. Ein líkamsárás var kærð til lögreglu eftir skemmtanahald helgarinnar en hún átti sér stað að morgni 12. október sl. fyrir utan veitingastaðinn Volcano. �?arna hafði maður ráðist á annan með þeim afleiðingum að sá sem fyrir árásinni varð þurfti að leita sér aðstoðar læknis vegna áverka sem hann fékk. Málið er í rannsókn.
Að morgni 10. október sl. var lögreglu tilkynnt um að skotið hafi verið úr loftriffli á hús í bænum og að líklega hafi húsráðandinn fengið eitt skotið í sig. Bárust böndin fljótlega af nágranna mannsins og var hann handtekinn skömmu seinna. Við leit á heimili nágrannans fannst loftriffill ásamt svokölluðum �??bikurum�?? sem notaðar eru til að skjóta úr loftbyssum. Ástæðan fyrir þessari skotárás var ósætti á milli nágrannana en báðir voru þeir undir áhrifum áfengis þegar atvikið átti sér stað. Ekki var um tjón að ræða né alvarleg meiðsli og er málið að mestu talið upplýst.
Tvö eignaspjöll voru tilkynnt lögreglu um helgina en um varð að ræða skemmdir á bifeiðum í bæði skiptin. �?arna höfðu hliðarspeglar verið brotnir af bifreiðunum og er trúlegt að um sama aðila hafi verið að ræða. Ekki er vitað hver þarna var að verki.
Fjögur umferðaróhöpp voru tilkynnt lögreglu í vikunni sem leið sem verður að teljast þó nokkuð á einni viku. Lítil sem engin slys urðu í þessum óhöppum en eitthvað tjón varð á ökutækjum.

Nýjustu fréttir

Árni Árnason – Þurrabúðarlíf í Eyjum um aldamótin 1900
34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.