�?jóðlegt íhald og áræðni í atvinnumálum
15. október, 2013
�?g er þeirrar skoðunar að atvinnulífinu vanti súrefni. Mín upplifun er að þróttur þess dvíni þessa dagana þegar það ætti að vera á uppleið. Vissulega eru margir hlutir að gerast, atvinnuleysi minnkar en heilt yfir er doði á mörgum sviðum. Iðfyrirtæki í framleiðslu og þjónustu merkja minni eftirspurn á landsbyggðinni og eina lífið í byggingariðnaðinum virðist vera í 101 Reykjavík. �?ar er aftur byrjað að blása í blöðrur þegar við ættum að skapa útflutningsverðmæti fyrir hagvöxt og uppbyggingu heilbrigðisþjónustunnar í landinu. �?g velti því fyrir mér hvort ríkisstjórnin og við sem stöndum að meirihlutanum í þinginu séum að standa okkur. �?g held að þrátt fyrir mörg góð áratök sé hollt að viðurkenna að við getum gert betur og að það liggur á á að gera betur! �?g vakna á hverjum morgni og velti fyrir mér hvað ég geti gert til að ástandið lagist. Fundahöld og spjall er ágætt en þar gerist ekkert. Við verðum að láta verkin tala. Erum við að gera það sem þarf til að koma stóru verkefnunum í gang. Í stað þess að fara í hefðbundna vörn eigum við að viðurkenna það það þurfi að sækja fastar. Við höfum rætt um að draga lausa enda í höfn svo m.a. álver í Helguvík komist í gang.
Og á 2. þúsund vel launuð störf. Fólk spyr: Hvað er raunverulega að gerast í því? �?g hef unnið að því verkefni frá árinu 2009 og þar hefur afar lítið breyst. Við sögðum í kosningabaráttunni að framkvæmdir við virkjanir í neðrihluta �?jórsár færu á stað svo fljótt sem verða mætti. �?ar er ekkert að gerast og Landsvirkjun hefur ekki selt svo mikið sem 1 mw svo lengi sem elstu menn muni. Sú stofnun hefur mestan áhuga að senda rafmagnið til að Englendingar geti aukið viðrisauka með með því að nýta orkuna þar í framleiðslu, ekki hér. Við ættum að tengja þá stofnun frekar við samfélagið og sjá hvort ekki kveiknaði á einhverjum ljósum við það. Hvernig væri að þetta fyrirtæki okkar landsmanna setti á sína stefnuskrá að að skapa í landinu fjölbreytt- og vel launuð störf? �?að er mikilvægara en láta aðrar þjóðir njóta virðisaukans af einni verðmætustu auðlind þjóðarinnar, grænu orkunni.
En tækifærin bíða okkar mun víðar. Fiskiskipastóllinn er orðinn gamall og þar liggja tækifæri að hefja aftur skipasmíðar innanlands. Smíði fiskiskipa eru aftur að færast frá austur Asíu til vesturlanda og má segja að bylgjan sé nú komin að Tyrklandi. Hefjum aftur til virðingar skipasmíði hjá íslenskum fyrirtækjum sem búa yfir þekkingu og vel menntuðum starfsmönnum sem geta tekist á við endurnýjum fiskiskipaflotans. Til þess þarf þrek og áræði. Veita greininni ívilnanir sem aðrar þjóðir hika ekki við og treysta þekkinguna og verðmætasköpunina í landinu. Íslensk fyrirtæki geta smíðað fiskiskip allt að 45 metrum. Hágæða smíði eins og best gerist í heiminum er raunverulegur kostur á Íslandi. Með því að tryggja samkeppnishæfni, öryggi í afhendingu, gæðum og kostnaði má byggja aftur upp sterka grein í skipasmíðum í landinu. �?g varpa því fram að vilnanir gætu í formi viðbótarúthlutunar í kvóta til þeirra útgerða sem létu byggja skip sín í landinu. �?ar mætti hugsa sér 100 þorskígildistonn til þeirra útgera sem færu �??Íslensku leiðina�??. Á móti kemur gjaldeyrissparnaður þar sem aðeins hluti nýsmíðar er greiddur með gjaldeyri en hinn hlutinn með íslenskum skattskyldum krónum og minna atvinnuleysi. Hugsum út fyrir rammann og verum óhrædd við að styrka okkar fyrirtæki eins og allar aðrar þjóðir gera. Hér liggja ónýtt tækifæri.
�?nnur mikilvæg leið tengist fjárfestingaleið Seðlabankans. Allir sýna íslenskum knattspyrnumönnum í útlöndum áhuga. Íslenskir knattspyrnumenn í útlöndum fá 20% meira fyrir gjaldeyrir sem þeir nota til fjárfestinga í húsnæði og íbúðum í landinu en innlend fyrirtæki sem stunda milljarða samkeppnisiðnað á erlendum mörkuðum og þeim stendur fjárfestingaleið Seðlabankans ekki opin. Fjárfestingaleið til gjaldeyrissköpunar er önnur útfærsla á tækifærum meðan atvinnulífið er bundið í höftum. Hún byggir á því að nýta fjárfestingaleið Seðlabankans til að auka gjaldeyristekjur þjóðarinnar með því að heimila framleiðendum í tækjabúnaði að skipta gjaldeyrir yfir í krónur á markaðsvirði. Hundruð milljarðar króna í eigu erlendra aðila �??Snjóhengjan�?? er föst í höftum í landinu. Fengju erlendir aðilar að selja innlendum framleiðendum krónur á markaðsvirði flyst krónueign frá aðila sem lítinn áhuga hefur á eignum á Íslandi til framleiðanda í iðnaði sem myndu nota auknar tekjur til fjárfestinga í þekkingu og iðnaði í landinu og þannig byggja enn frekar undir útflutning og gjaldeyrissköpun. Höftin og undantekningar eru vandmeðfarin en á meðan við erum föst í þeim verðum við að huga að þeim framleiðendum í landinu sem halda trygg við að reka fyrirtækis sín hér heima. Fjárfestingaleiðin er fyrir fyrirtæki sem eru skráð erlendis og flytja gjaldeyri til landsins en fyrirtækin í landinu sitja ekki við sama borð. �?annig má færa fyrir því rök að 10.000.000 velta í evrum hjá innlendu fyrirtæki sé kaupverðið 1.6 milljarður króna en með fjárfestingaleið Seðlabankans þá fær íslenskt fyrirtæki skráð erlendis 2.1 milljarð króna í gegnum fjárfestingaleið Seðlabankans. �?annig er tryggum heimafyrirtækjum hegnt fyrir þjóðlega íhaldssemi sína með því að bera 500 m.kr. minna úr býtum en íslensk fyrirtæki skráð í útlöndum sem flytja hagnað sinn heim en greiða ekki skatta eða annað af þeim hagnaði. �?að að leyfa íslenskum framleiðslufyrirtækjum að skipta netto útflutningstekjum sínum með þessum hætti stórbætir samkeppnishæfni þeirra gagnvart erlendum keppinautum og getur ekki annað en aukið gjaldeyristekjur þjóðarbúsins. Hér er því engu að tapa. Meðan við spilum í höftum verðum við að gefa rétt fyrir þá sem vilja efla byggðirnar og fjárfestingu í landinu.
Ásmundur Friðriksson alþingismaður
Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.