Bæjarbúum boðið í skrúðgöngu
Á morgun, miðvikudag, er Olweusardagur í Grunnskóla Vestmannaeyja þar sem unnið verður áfram með sáttmála gegn einelti sem kynntur var fyrir ári síðan. Skólinn okkar er ekki eyland og langar okkur fá allt samfélagið til að taka afstöðu gegn einelti á ábyrgan hátt. �?llum bæjarbúum sem eiga heimangengt er boðið að koma í skrúðgöngu með nemendum og starfsfólki Grunnskóla Vestmannaeyja á morgun, miðvikudag, og taka þannig undir sáttmálann. Gangan hefst við Hamarsskóla kl.10:30, gengið verður að Landakirkju þar sem nemendur í Barnaskólanum slást í för. Fólk getur komið inn í gönguna á hvorum staðnum sem er, eða þegar við röltum niður Skólaveg og framhjá Ráðhúsinu. Við förum síðan lítinn rúnt um miðbæinn og endum á Stakkó.
Að göngu lokinni munu nemendur kynna sáttmálann í fyrirtækjum og stofnunum og skilja eftir verkefni.
f.h. GRV
Helga Tryggva, verkefnisstjóri Olweusaráætlunarinnar í GRV.

Nýjustu fréttir

Árni Árnason – Þurrabúðarlíf í Eyjum um aldamótin 1900
34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.