Fyrirlestur fyrir foreldra barna í íþróttum
Miðvikudaginn 16. október mun Viðar Halldórsson koma til Vestmannaeyja og vera með fyrirlestur fyrir nemendur Akademíunnar. Einnig verður opinn fyrirlestur fyrir foreldra og þjálfara barna í íþróttum (allra foreldra, ekki bara þeirra sem eiga börn í Akademíunni). Fyrirlesturinn fyrir foreldra hefst kl. 18:30 í Týsheimilinu og stendur til 20:00 (ókeypis aðgangur).
Almennt er litið á að árangur, í víðri merkingu þess orðs, byggi á einstaklingsbundnum þáttum. Að einstaklingar búi yfir ákveðnum eiginleikum sem gera þeim kleift að ná árangri á ákveðnu sviði. Mun minna hefur verið fjallað um hvernig hin félagslega umgjörð mótar einstaklinga og hópa og getur skapað forsendur fyrir árangri eða jafnvel dregið úr árangri. Í erindinu verður fjallað um hlutverk foreldra, þjálfara og hins stærra félagslega umhverfis fyrir árangur í íþróttum, sem og á öðrum sviðum.
Viðar hefur sinnt verkefnum sem ráðgjafi fyrir íþróttafélög, fyrirtæki og stofnanir frá árinu 2001. Frá árinu 2003 starfaði hann sem lektor við Kennaraháskóla Íslands og síðar við Háskólann í Reykjavík þar sem hann var m.a. sviðsstjóri íþróttafræðasviðs. Viðar hefur sinnt kennslu og rannsóknum í félagsfræði, íþróttafélagsfræði og íþróttasálfræði við Háskólann í Reykjavík og Háskóla Íslands. Hann er með doktorspróf í félagsfræði með sérstaka áherslu á félagsfræði árangurs (sociology of excellence).

Nýjustu fréttir

Norlandair með lægsta tilboð í flug til Eyja
„Hörkufiskirí”
Gular viðvaranir í öllum landshlutum
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Viðburðaríkir og skemmtilegir fjölgreindarleikar
Boranir hefjast í apríl
Fjölbreytt efni í nýju tölublaði Eyjafrétta
Opið hús og kertalýsing – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.