Íslenska landsliðið í knattspyrnu náði sögulegum áfanga þegar liðið gerði jafntefli gegn Noregi í kvöld. Eyjapeyinn Heimir Hallgrímsson, aðstoðarþjálfari liðsins á stóran þátt í velgengni íslenska liðsins í undankeppni HM og nú er aðeins ein hindrun, tveir leikir gegn Portúgal, Grikklandi, �?kraínu eða Króatíu. Heimir var ekki viss hvernig honum leið þegar Eyjafréttir heyrðu í honum hljóði stuttu eftir leikinn. �??�?g veit það varla. �?egar maður er búinn að vera með eitthvert plan og trúir á það sjálfur, þá einhvern veginn er þetta ekkert svo mikið. �?g hef beðið eftir því að tilfinningarnar streymi fram en það hefur ekki gerst ennþá. En það má ekki gleyma því að við erum ekki búin að ná okkar takmarki, að komast inn á HM, sem við höfum stefnt á frá upphafi. �?etta eru auðvitað mjög háleit markmið hjá ekki stærri knattspyrnuþjóð en við trúðum því að við gætum endaði í öðru af tveimur efstu sætunum í riðlinum. Við erum búnir að sjá þetta fyrir okkur og það hefur ræst. �?ess vegna er kannski ekki eins gaman að fagna því. En ég ætla auðvitað ekkert að vera hrokafullur, þetta er frábær árangur og besti árangur íslenska karlalandsliðsins frá upphafi. Við megum því vera aðeins grobbin þessa stundina.
En hvernig var að bíða eftir úrslitunum í leik Sviss og Slóveníu eftir að leiknum lauk?
�??�?g held að menn hafi hálft í hvoru vitað að fyrst Sviss væri 1:0 yfir, þá myndu Slóvenar aldrei skora tvö mörk í uppbótartíma. En auðvitað fögnuðum við ekkert fyrr en þetta lá alveg ljóst fyrir, þá brutust út þvílík fagnaðarlæti, bæði á vellinum og meðal okkar frábæru áhorfenda. �?vílíkur stuðningur sem við fengum þarna úti. �?að var æðislegt að sjá svona marga Íslendinga, allir í bláu og létu vel í sér heyra.�??
Viðtalið birtist allt í vikublaði Eyjafrétta sem kemur út á morgun, miðvikudag.
Hér að neðan má svo sjá fagnaðarlætin hjá íslenska liðinu þegar niðurstaðan lá fyrir.