Opinn kynningarfundur á föstudag
Í mars á næsta ári fagnar Slysa­varnadeildin Eykyndill 85 ára afmæli sínu. Í tilefni af þessum tímamótum hefur verið ákveðið að halda opinn kynn­ingar­fund föstudaginn 18. októ­ber nk. þar sem starfsemi félagsins og dagskrá vetrarins verður kynnt bæði fyrir Eykynd­ilskonum og væntanlegum nýjum félögum. Að auki munu hinir ýmsu aðilar, sem selja vörur í heimahúsum hér í bæ, verða með stutta ­kynningu á sínum vörum.
Samkvæmt því sem Elísa Elías­dóttir, formaður félagsins segir, var stefnt á það í haust að allar kvenna­deildir innan Landsbjargar héldu opinn kynning­arfund með stuðningi frá Lands­björgu en þegar það gekk ekki ákváðu Eykyndilskonur að halda ótrauðar áfram og útvíkka �??kynn­ingar�?? hugtakið með því að bjóða nokkrum kynningaraðilum í Vestmannaeyjum á fundinn. Ekki verður um eiginlegar kynningar að ræða heldur verða vörurnar til sýnis og kynningaraðilinn mun halda stutta tölu um vörur sínar og hvernig má nálgast þær.
Grímur kokkur ætlar að bjóða konum upp á humarsúpu og boðið verður upp á brauð með henni og svo eitthvað sætt á eftir en drykkjarföng kemur hver með fyrir sig. Reynt verður þó að sjá til þess að engin kona verði þyrst.
�?ær sem verða með kynningar eru Aðalheiður Pétursdóttir með AP-Skart, Berglind Smáradóttir með FM vörurnar, Íris Jónsdóttir með Zinzino, Karen Inga �?lafsdóttir með Active, Lilja �?lafsdóttir með Tuppiware, Sigríður Stefánsdóttir með vörur frá Tótal, og Elísa Elíasdóttir mun kynna starfsemi Eykynd­ils í fortíð, nútíð og framtíð.
Kynningarfundurinn verður haldinn í Básum, félagsheimili Eykyndils, föstudaginn 18. október. Húsið verður opnað kl. 20 en dagskráin byrjar kl. 20:30. Að­gangur er ókeypis og allar konur eru vel­komnar.

Nýjustu fréttir

Norlandair með lægsta tilboð í flug til Eyja
„Hörkufiskirí”
Gular viðvaranir í öllum landshlutum
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Viðburðaríkir og skemmtilegir fjölgreindarleikar
Boranir hefjast í apríl
Fjölbreytt efni í nýju tölublaði Eyjafrétta
Opið hús og kertalýsing – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.