Eyjafyrirtækið 247golf.net í útrás
Nýsköpunarfyrirtækið 247golf.net frá Vestmannaeyjum tók þátt í áttundu ráðstefnu golfvallareigenda í Evrópu og kynnti þar bókunarkerfi sem fyrirtækið hefur þróað. Auk þess var fyrirtækið með sýningarbás en eigendur rúmlega 500 golfvalla í Evrópu voru á ráðstefnunni. Sæþór Orri Guðjónsson, framkvæmdastjóri 247golf.net segir að ráðstefnan hafi tekist vonum framar og hafi margir golfvallareigendur verið mjög áhugasamir um lausn fyrirtækisins. �??Við höfum fengið mjög góð viðbrögð og innsýn inn í huga þeirra sem eiga og reka golfvelli í dag. �?að komment sem við höfum heyrt hvað oftast um lausnina okkar er hvað hún er veigamikil og það gleður okkur mikið enda er kerfið búið að vera í stanslausri þróun síðustu 18 mánuði. Við heyrðum það meira segja frá einum af okkar samkeppnisaðila að það væru allir að tala um okkur hérna á ráðstefnunni en það gefur okkur byr undir báða vængi með framhaldið,�?? segir Sæþór Orri.
Sæþór segir jafnframt mikilvægast að nálgast rétta fólkið á ráðstefnum sem þessari og skapa strax tengingu við það. �??Við höfum nú þegar fengið nokkrar beiðnir um samstarf frá öðrum fyrirtækjum innan golfgeirans en þar gætu leynst ýmist tækfifæri sem við skoðum þegar við komum aftur til Íslands. Fyrir þessa ráðstefnu vissu fáir af okkur innan sambandsins en í dag hefur okkur tekist að stimpla okkur rækilega inn. Í morgun tók svo Jóhann Guðmundsson forritari okkar þátt í umræðu panelnum �??Lets talk tech” en þar var rætt um áhrif tækninýjunga, samfélagsmiðla og framtíðaráhrif þeirra á golfmarkaðinn. Sú umræða gekk það vel að eftir umræðuna báðu sambönd evrópskra golfvallareiganda Jóhann um að taka þátt í mótun á kennsluefni um samfélagsmiðla fyrir golfvallareigendur. Dagurinn í dag er síðasti dagurinn á ráðstefnunni og endar ráðstefnan á hádegismat sem er í boði okkar hjá 247golf.net.�??

Nýjustu fréttir

Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.