Tryggjum réttlátt samkeppnisumhverfi í sjávarútvegi
Aðalfundur SF�?, haldinn á Hótel Borg miðvikudaginn 6. nóvember 2013 skorar á sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að grípa til aðgerða í samræmi við tilmæli , sem Samkeppniseftirlitið setti fram í áliti sínu nr. 2/2012, en þar segir:
�??�?�með vísan til c. liðar 1. mgr. 8. gr. og 18. gr. samkeppnislaga beinir Samkeppniseftirlitið þeim tilmælum til atvinnuvega- og nýsko�?punarráðherra, sem ber ábyrgð á þessum málaflokki, að hann beiti sér fyrir því að komið verði í veg fyrir þær samkeppnishindranir sem leiða af þeim lo�?gum og þeirri framkvæmd sem fjallað hefur verið um hér að framan. Skal það gert með lagasetningu og/eða o�?ðrum aðgerðum sem tryggja að samkeppni skerðist ekki að óþo�?rfu á þessu sviði, en eins og kom fram hér að ofan er mikilvægt sú leið sé valin við lagasetningu sem hefur minnst skaðleg áhrif á samkeppni þegar samkeppnishindranir leiða óhjákvæmilega af lo�?gum.�??
Fundurinn skorar á ráðherra að beita sér fyrir því að a.m.k. 40 prósent af afla verði seldur í gegnum íslenska fiskmarkaði til að tryggja nægt framboð á mörkuðum.
Fundurinn skorar á ráðherra að beita sér fyrir því að öll viðskipti með fisk fari fram á markaðsverði og að skiptaverð verðlagsstofu í núverandi mynd verði lagt af.
Fundurinn skorar á ráðherra að beita sér fyrir því að fiskmörkuðum verði gefin betri skilyrði til vigtunar svo að þeir geti afgreitt rétta vigt til sinna viðskiptavina.
Fundurinn skorar á ráðherra að endurskoða starfsreglur fiskmarkaða og beita sér fyrir því að eignarhald á fiskmörkuðum verði dreifðara en það er í dag.
Fyrirtæki innan SF�?, búa við mikinn samkeppnismun. Við svo búið má ekki sitja. Innan SF�? eru sprotafyrirtæki sem skapa mestu verðmæti á hvert kg. upp úr sjó fyrir íslenskt þjóðarbú.
Stöndum vörð um okkar auðlind og eyðum samkeppnismun í sjávarútvegi.
Tryggjum réttláta samkeppni í sjávarútvegi �?? þjóðinni allri og neytendum til heilla!

Nýjustu fréttir

Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.