Í byrjun október var Kristján �?ór Júlíusson heilbrigðismálaráðherra í heimsókn í Eyjum þar sem hann ræddi við bæjarstjórn og starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja (HSV) um stöðuna í heilbrigðismála í Vestmannaeyjum. Ákvað hann í samstarfi við bæjarstjórn að skipa tvo samstarfshópa. Annan um heilbrigðisþjónustu í Vestmannaeyjum sem átti að skila af sér 15. nóvember síðastliðinn. Samhliða hópnum starfaði hópur um framtíðarskipulag fæðingarþjónustu í Vestmannaeyjum. Hópurinn átti að leggja tillögur til ráðherra um verklag fyrir 1. nóvember síðastliðinn. Eru þær samkvæmt heimildum Eyjafrétta komnar eða á leið í ráðuneytið.
�??�?g hef verið í sambandi við ráðuneytið en en þar er ekkert að frétta ennþá,�?? sagði Gunnar Kr. Gunnarsson, framkvæmdastjóri HSV. �??Tillögurnar hljóta að vera komnar til ráðherra eða á leiðinni til hans. Ákvörðunin er svo hans,�?? sagði Gunnar einnig.
�??Nefndirnar eru enn ekki búnar að skila af sér en ég geri ráð fyrir að þær geri það á næstu dögum,�?? sagði Elliði Vignisson, bæjarstjóri þegar rætt var við hann í morgun. �??�?að er þó ljóst að það er gríðarlega mikill áherslumunur á milli ráðuneytisins og okkar. �?að jákvæða er að þetta er í fyrsta skipti sem men setjast yfir þetta og leita lausna. Hvernig sem þessum peningi er kastað þá kemur alltaf upp sama hliðin, það vantar meira fjármagn í heilbrigðisþjónustuna,�?? sagði Elliði.
Verkefni fyrra hópsins var fjórþætt. Hann átti að koma með tillögur i til eflingar grunnheilbrigðisþjónustu sem tryggi sem best öryggi þeirra Vestmannaeyinga sem þurfa inngrip eða aðkomu sérhæfðari þjónustu, s.s. vegna slysa, bráðra sjúkdóma eða fæðinga. Í öðru lagi að koma með tillögur sem leiði til aukinnar hagkvæmni í rekstri, skýrari stefnumörkun, hlutverks og samhæfingar heilbrigðisþjónustunnar í Vestmannaeyjum. Í þriðja lagi fylgst verði með hver árangurinn verður og hvort öryggið verði nægjanlega. Í fjórða lagi átti hópurinn að kanna kosti og galla þess að Vestmannaeyjabær reki, samkvæmt samningi við ríkið, heilbrigðisþjónustu í Vestmannaeyjum.
Tillögurnar eiga á ná til allra starfsþátta HSV og hjúkrunarheimilisins Hraunbúða. Á hópurinn að leggja til leiðir til að samhæfa betur einstaka þjónustuþætti, s.s. heilsugæslu, legudeild, heimaþjónustu og hjúkrunarheimili. Leggja mat á útreiknaða rekstararhagræðingu og afleiddan kostnað vegna fyrirhugaðra breytinga á starfseminni, s.s. vegna öryggisþátta heilbrigðisþjónustunnar, sjúkraflutninga og starfsemi heilsugæslu og öldrunarþjónustu.
Í hópnum sitja fyrir hönd ráðuneytisins �?feigur Tryggvi �?orgeirsson sem leiðir störf hópsins og Steinunn Sigurðardóttir . Fyrir hönd bæjarins Hjörtur Kristjánsson og Trausti Hjaltason Hópnum er ætlað að skila áfangaskýrslu eigi síðar en 15. nóvember nk.
Í fæðingarhópnum eru Ágúst �?skar Gústafsson, læknir sem leiðir hópinn, Drífa Björnsdóttir, ljósmóðir HSe, Sigrún Kristjánsdóttir, ljósmóðir HSU, Hildur Harðardóttir, yfirlæknir LSH og Anna Sigríður Vernharðsdóttir, yfirljósmóðir á LSH.