�?að væri varlega tekið til orða að segja að ég hafi �??sjokkerast�?? þegar ég heyrði í innanríkisráðherra í fréttum í gærkvöldi varðandi siglingar í Landeyjarhöfn og nýsmíði á skipi til siglinga þangað.
Nú yrði stefnt að því að hönnun á nýju skipi yrði boðin út sennilega í þessum mánuði, en skipið væri vandamálið við siglingar í höfnina.
Orðrétt sagði ráðherrann �??�?essi mál leysast ekki fyrr en við erum komin með viðvarandi lausn, en sú lausn felst í því að hanna og smíða nýtt skip til að sigla þessa leið. Við höfum vitað það allan tímann að vandamálið færi ekki fyrr en það væri klárað.�?? Já mikil er trú ráðherrans og væri vel ef svo væri, að öll vandamálin hyrfu með nýju skipi.
Mér ásamt mörgum öðrum finnst hér vitlaust að verki staðið. Núverandi aðstæður eru þannig að höfnin er full af sandi og takið eftir sandfoki kennt um, ekki sandburði inn í höfnina.
Dýpkunarskip hefur meira og minna verið bundið við bryggju í Vestmannaeyjum en í það látið skína að allt hafi verið á fullu við dýpkun.
Víkingur sem ristir lítið og sennilega minna en nýtt skip á að gera, getur ekki siglt og ganga má þurrum fótum í höfninni á fjöru.
Er ekki eitthvað bogið við þetta allt saman?
Væri ekki ráð að ráðherra hlustaði á þau rök og opnaði augun fyrir því að hafnargerðinni er engan veginn lokið?
Væri ekki ráð fyrir ráðherrann og stjórnvöld að láta fara fram útboð á hönnun við að ljúka við hafnarframkvæmdir í Landeyjarhöfn og láta ferjusmíði ekki taka mið af ófullgerðri höfn heldur sem tæki mið af þörfum þeirra sem þessar samgöngur eiga að þjóna? Eða er það of skynsamlegt til að það verði að veruleika? Sjáum til.