Kvennalið ÍBV leikur gegn Val í kvöld klukkan 18:00 í 8-liða úrslitum Coca Cola bikarkeppninnar en leikur liðanna fer fram á heimavelli Vals í Vodafonehöllinni. Búast má við mjög erfiðum leik fyrir ÍBV enda Valur annað af tveimur bestu liðum Olísdeildarinnar. �?að er hins vegar þekkt staðreynd að allt getur gerst í bikarnum, ekki síst ef stelpurnar ná upp sama leik og í síðari hálfleik í leik liðanna á dögunum. �?á hreinlega valtaði ÍBV yfir Hlíðarendaliðið eftir að hafa vera fimm mörkum undir í hálfleik, og hafði að lokum eins marks sigur. Haukar og Stjarnan hafa þegar tryggt sér sæti í undanúrslitum en síðar í kvöld leika svo Grótta og Fram. Undanúrslit bikarsins fara svo fram í Laugardalshöll fimmtudaginn 27. febrúar og úrslitaleikurinn laugardaginn 1. mars.