Flugfélagið Ernir hefur sett upp töluvert af aukaflugum næstu daga til að anna eftirspurn. Aukaflug er í dag miðvikudag kl 14:00 frá Reykjavík og 14:45 frá Eyjum. Tvö aukaflug eru á morgun fimmtudag, annað um morguninn og hitt síðdegis. Einnig hefur verið sett upp flug kl 14:00 á föstudag frá Reykjavík og 14:45 frá Eyjum.
Búast má við að fleiri flug verði sett upp næstu daga og er því fólk kvatt til að fylgjast með á
ernir.is og á facebook síðu félagsins.