Devon Már Griffin skrifaði í dag undir tveggja ára samning við ÍBV. Devon Már, sem er fæddur 1997, hefur gengið upp í gegnum yngri flokka félagsins en hann vakti fljótt athygli fyrir hæfileika sína og hefur staðið sig afar vel með yngri flokkum félagsins, að því að fram kemur í tilkynningu frá ÍBV-íþróttafélagi. Devon Már hefur verið í æfingahópi U-17 ára landsliðsins undanfarið en samningurinn er til tveggja ára.