Valsmenn í heimsókn í kvöld
Karlalið ÍBV tekur á móti Val í Olísdeildinni í kvöld klukkan 19:30. Eyjamenn hafa þegar tryggt sér annað sætið í Olísdeildinni og eiga reyndar enn möguleika á Deildarmeistaratitlinum en þá verða þeir að vinna síðustu tvo leikina og Haukar að tapa síðustu tveimur. Valsmenn þurfa líka á stigunum að halda því þótt þeir hafi tryggt sér sæti í úrslitakeppninni, þá geta Framarar stolið þriðja sætinu af þeim enda er Fram aðeins tveimur stigum á eftir Val. Eyjamaðurinn Vignir Stefánsson verður vitaskuld á sínum stað í Valsliðinu í kvöld.
Ef ÍBV vinnur í kvöld og Haukar tapa, þá verður hreinn úrslitaleikur um Deildarmeistaratitilinn í Hafnarfirði á mánudaginn þegar Haukar taka á móti ÍBV. Haukar taka á móti Akureyri í kvöld á heimavelli sínum í Hafnarfirði.
Upphitunarþáttur Hvítu Riddaranna
Stuðningsmannasveintin Hvítu Riddararnir ætla að bjóða upp á upphitunarþátt fyrir leikinn í beinni útsendingu á vefnum. �?tsendingin fer fram í gegnum snjallsímaforritið Yevvo en með þeim verður Stefán Árnason, þjálfari hjá ÍBV. �?tsendingin hefst klukkutíma fyrir leik eða 18:30 og hægt er að fylgjast með útsendingunni með því að smella hér.

Nýjustu fréttir

Við höfum þurft að ryðja brautina
Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.