Laglegur baráttusigur á Val
Nú liggur ljóst fyrir að ÍBV endar deildarkeppnina í öðru sæti Olísdeildar karla. Eyjamenn lögðu Val að velli í kvöld 31:27 og fögnuðu vel og innilega í leikslok enda fóru Valsmenn illa með ÍBV þegar liðin áttust við síðast í Eyjum og unnu með tíu mörkum. Sigurinn var því mikilvægari en þau tvö stig voru í boði því á sama tíma gerðu Haukar jafntefli gegn Akureyri, sem dugði þeim til að tryggja sér deildarmeistaratitilinn. Eyjamenn geta jafnað Hauka að stigum en Haukar hafa betur í innbyrðisviðureignum og fá því titilinn. �?essi tvö lið mætast einmitt í síðustu umferðinni á mánudaginn í Hafnarfirði og hefðu handknattleiksunnendur eflaust þegið hreinan úrslitaleik um deildarmeistaratitilinn en það bíður betri tíma.
Eins og áður sagði er annað sætið Eyjamanna. �?að er hreint út sagt frábær árangur hjá liðinu enda ÍBV nýliði í úrvalsdeild. Auk þess er liðið að lang mestu leyti byggt upp á þeim leikmönnum sem komu liðinu upp í úrvalsdeild á sínum tíma, aðeins þeir Agnar Smári Jónsson og Róbert Aron Hostert sem hafa bæst við af þeim sem spila mest. Eyjamenn sýndu í kvöld sitt rétta andlit enda skein baráttan úr andlitum leikmanna ÍBV. Eyjamenn börðust eins og ljón í leiknum og uppskáru eins og til var sáð. Leikurinn var í jafnvægi í fyrri hálfleik, liðin skiptust á að skora en jafnt var í hálfleik, 14:14. Eyjamenn voru svo með undirtökin í seinni hálfleik en það var þó ekki fyrr en á síðustu tíu mínútunum sem ÍBV tókst að hrista Valsmenn af sér og tryggja sér sigurinn mikilvæga.
Nú er staðan þannig að Haukar hafa tryggt sér efsta sætið og ÍBV annað sætið. Valsmenn eru í þriðja sæti en geta fallið niður í það fjórða. �?eir eru hins vegar öruggir í úrslit. Fram er í fjórða sæti en fjögur efstu liðin komast í úrslitakeppnina. En aðeins stigi á eftir Fram er FH og ÍR aðeins tveimur stigum þar á eftir. Fram, FH og ÍR eiga því öll möguleika á að ná fjórða sætinu en í lokaumferðinni mætast einmitt Valur og Fram og FH og ÍR. �?etta allt saman skiptir máli því ef Valsmenn tapa, þá mætir ÍBV Fram í úrslitum. Ef Valur gerir hins vegar jafntefli eða vinna leikinn, þá fá Eyjamenn Val í úrslitum. Flestir eru eflaust sammála um að Fram væri mun betri kostur en litlar líkur eru á því.
Meðfylgjandi er viðtal við Róbert Aron Hostert eftir leik en hann skoraði 9 mörk í leiknum. Agnar Smári Jónsson reyndi að troða sér í viðtalið en uppskar ekki eins og sáð var til.
Mörk ÍBV: Róbert Aron Hostert 9, Theodór Sigurbjörnsson 8/3, Grétar Eyþórsson 6, Andri Heimir Friðriksson 5, Sindri Haraldsson 2, Guðni Ingvarsson 1.
Varin skot: Henrik Eidsvaag 6, Kolbeinn A. Ingibjargarson 5.

Nýjustu fréttir

Ófært til lands – uppfært
Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló
Bíða enn eftir alvöru vertíðarstemmningu
Ferðaþjónustan er öflug atvinnugrein sem þarf tryggar samgöngur
Gul viðvörun á Suðurlandi: Búist við þrumuveðri
Evrópudagur talþjálfunar er í dag
Forsala á Þjóðhátíð 2026 hafin
Hitastig sjávar að vetri aldrei verið hærra
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.