�?að verður mikið um dýrðir þegar Eldheimar verða formlega opnaðir á föstudaginn. Mikill áhugi er fyrir safninu og er von á fjölda gesta við opnunina. Eldheimar eru einstakt safn um hamfarirnar í Heimaeyjargosinu 1973, Surtseyjargosinu 1963 og jarðsögu Vestmannaeyja sem allar hafa myndast í gosum. Mun það vekja athygli langt út fyrir landsteinana og er gert ráð fyrir að tugir þúsunda heimsæki það árlega. �?llum Vestmannaeyingum er boðið að skoða safnið fyrstu fimm sýningardagana, frá laugardegi til miðvikudags.
Kristín Jóhannsdóttir, forstöðumaður Eldheima hafði í nógu að snúast í gær þegar rætt var við hana. �??�?g var að enda við að tala við fólk frá japanska sjónvarpinu sem sýnir áhugann sem Eldheimar hafa vakið þó ekki sé enn búið að opna,�?? sagði Kristín. �??�?að eru að detta inn pantanir og áhuginn er mikill. �?g hlakka til helgarinnar þegar Eldheimar verða opnaðir við hátíðlega athöfn. Meðal gesta verða forseti Íslands og menntamálaráðherra. Já, ég held að það verði ofsagaman.�??
Búið er að senda út boðskort til allra í Vestmannaeyjum sem fá að skoða safnið fyrstu fimm opnunardagana. �??Safnið verður opnað á laugardaginn fyrir gesti og þá geta bæjarbúar mætt. Stendur boðið fram á miðvikudag í næstu viku. Hvet ég fólk til að fjölmenna en svo munum við bjóða upp á árspassa fyrir þá sem hér búa.�??
Safnið á eftir að koma á óvart
�?að hefur verið mikill handagangur í Eldheimum að leggja lokahönd á safnið fyrir opnunina. �??Auðvitað verður eitthvað smálegt óklárað en safnið sjálft og allt sem skiptir máli verður tilbúið. �?að er ekki spurning, það verður gaman á föstudaginn og alla helgina og ég veit að safnið á eftir að koma á óvart. Við erum að bjóða upp á einstakt safn, ekki bara hér á landi, heldur líka úti um allan heim. �?g stefni að því að ná 15000 gestum á þessu ári og auka það svo jafnt og þétt,�?? sagði Kristín.
Gerðisbraut 10 miðdepillinn
Eldheimar eru alls 1200 fm og lofthæðin er níu metrar. Inni í því miðju er Gerðisbraut 10 og eru útveggirnir nánast heilir. �?að er hægt að skoða húsið frá öllum hliðum en ekki verður farið inn í það. Húsið er látið halda sér eins og það kom undan vikrinum. Má m.a. sjá sófa í stofunni en fleira úr innbúi íbúanna, Gerðar Sigurðardóttur og Guðna heitins �?lafssonar, verður bætt við. Fyrir utan verða snertiskjáir þar sem hægt er að sjá hvernig húsið leit út samkvæmt myndum úr eigu fjölskyldunnar.