Ekki er allt sem sýnist
Undanfarin kvöld, þegar HM lauk í Ríkissjónvarpinu, flakkaði ég talsvert á milli sjónvarpsstöðvanna ÍNN og N4, en þar er eingöngu sýnt íslenskt efni og víða komið við. �?g hef uppgötvað að þessar stöðvar eru að opna manni nýja sýn á landið Ísland og íslensku þjóðina. Af þeim fréttum sem landsfjölmiðlarnir hafa uppá að bjóða, gæti maður staðið í þeirri meiningu að á höfuðborgarsvæðinu séu hlutirnir að gerast, þar sé menningin og þar sé athafnalífið. �?aðan eru jú fréttirnar. Meira að segja veðrið í Reykjavík er veðrið á landinu. �?ti á landi búi hinsvegar fólk sem ekki nýtur menningar í einföldu fábreyttu mannlífi. Bíður þess helst að flytja til höfuðborgarsvæðsins. �?að fólk sem fengið er til álitsgjafa á ýmsum þjóðfélagsmálum eða er fengið í hina ýmsu umræðuþætti, er fólk úr ákveðinni elítu höfuðborgarinnar. Fólk af landsbyggðinni er greinilega ekki nógu vel upplýst til að tjá skoðanir sína á þjóðfélagsmálum á þeim vettvangi. �?annig allavega horfir þetta við mér. En bíðum við, ekki er allt sem sýnist.
Í sjónvarpsþáttum Ingva Hrafns, sjónvarpsstjóra ÍNN þar sem hann heimsækir Vestfirði og Norðurland, og sem hann sýnir á sjónvarpsstöðinni sinni, kemur í ljós að þar er víðast blómleg menning og mannlíf og þar býr upplýst og skoðanaríkt fólk. �?ar lifir fólk ágætu lífi og líður vel. Er að fást við fjölbreytt verkefni sem aldrei er minnst á, nema í héraðsfréttamiðlunum. N4 sjónvarpsstöðin á Akureyri flytur manni fréttir af blómlegu menningarlífi og athafnalífi þar í bæ og í nærsveitunum. Miklu blómlegra mannlífi en mann óraði fyrir. – Og Fiskistofufólkið sem taldi að það þyrfti áfallahjálp ef það ætti að flytja þangað.
Til margra ára hefur það verið yfirlýst markmið ríkisvaldsins, að dreifa opinberum störfum um landið, þótt reyndin hafi í raun verið á hinn veginn. Í viðtali Morgunblaðsins við bæjarstjórann á Ísafirði í fyrradag, segir hann: �??Ef við náum einhverjum störfum eða verkefnum til okkar, hefst strax barátta við að halda í þau. Að kvöldi er búið að strika mest allt út vegna hagræðingar. Næsta dag hefst sama stríðið. Hér er komið með starfsstöð, svo kemur krafa um hallalaus fjárlög og niðurskurð. Og þá er kannski fyrir þann sem mannaforráðin hefur, auðveldara að segja upp manni fyrir vestan en þeim sem situr í næsta herbergi.�??
Á Íslandi búa tvær þjóðir, landsbyggðin og höfuðborgarsvæðið. �?að er löngu kominn tími til að jafna fleira en atkvæðisréttinn.
www.http://vimeo.com/100122022

Nýjustu fréttir

Eyþór leiðir – uppfært
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.