Á morgun, laugardaginn 19. júlí kl. 13.00 verður svokölluð Tyrkjaránsganga, í minningu Tyrkjaránsins 1627. Boðið verður uppá sögugöngu og hefst hún við verslunarmiðstöðina Kjarval, Goðahrauni 1. Staldrað verður við hjá Hundraðsmannahelli, Fiskhellum, Landakirkju, Stakkagerðistúni og endað á Skansinum, þar sem skotið verður úr fallbyssunni.
Ragnar �?skarsson kennari leiðir gönguna og segir frá ýmsum atburðum tengdum Tyrkjaráninu.