Elliða verður stefnt fyrir rógburð og tilraun til að sverta mannorð
Í tilefni frétta í fjölmiðlum síðustu daga vegna deilna hluthafa í DV er rétt að geta þess að undirritaður hefur stundað viðskipti í langa tíð. �?g hef í gegnum mín félög styrkt og lánað fjármuni til ýmissa verka, einstaklinga og félaga. �?g hef ekki verið að auglýsa það né tilkynna það opinberlega nema þar sem það á við. Hvort sem það er lán eða styrkir til einstaklinga (eins og lánið til Reynis Traustasonar), líknarfélaga, íþróttafélaga, íþróttamanna, námsmanna, vísindastarfs, listastarfs eða hvað sem er. En þar sem ég er borinn svo alvarlegum ásökunum af bæjarstjóra Vestmannaeyja þá ætla ég að svara þessu og taka til varnar. �?egar Reynir Traustason kom til mín á síðasta ári og spurði hvort ég vildi verða hluthafi í DV sagði ég strax nei. En þegar hann sagði að það væru komnir fleiri fjárfestar að blaðinu þá sagði ég við hann að ég gæti alveg lánað honum en ég vildi ekki fara í blaðarekstur og það væri ekki mitt fag og ég væri oft ekki sammála skrifum DV. �?g hef heldur ekki verið sammála stefnu og skrifum Morgunblaðsins síðustu áratugi og þegar leitað var til mín fyrir nokkrum árum um hlutafé í það blað sagði ég nei. �?að má segja um mín viðskipti á síðustu árum að þau hafi bæði verið viturleg og óviturleg en að segja að ég hafi stjórnað ritstjórnarstefnu DV er rangt og fjarri öllum raunveruleika.
Elliða Vignissyni bæjarstjóra í Vestmannaeyjum verður stefnt fyrir rógburð og tilraun til að sverta mannorð. Sem hluthafi í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum hef ég verið í deilum við meirihluta hluthafa. �?g hef talið að stefna og gjörðir meirihluta hluthafa Vinnslustöðvarinnar (VSV) í Vestmannaeyjum hafi skaðað VSV og í dag sé félagið illa rekið sjávarútvegsfyrirtæki vegna stefnu meirihluta hluthafa og meirihluta stjórnar VSV. �?essa skoðun hef ég sagt á aðalfundum félagsins og í öllum samtölum þegar málefni VSV eru rædd. �?g er ekki í neinum persónulegum deilum við framkvæmdarstjóra VSV, starfsfólk VSV eða samfélagið í Vestmannaeyjum, heldur við meirihluta hluthafa VSV. Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum er að reyna að slá sig til riddara og nýta sér deilur annara til að vekja athygli á sjálfum sér.
Virðingarfyllst,
Guðmundur Kristjánsson

Nýjustu fréttir

TM mótið hefst á morgun
Afmælisdagarnir gáfu ömmunni milljónir
Koddaslagur systranna skilaði 500 þúsund til Krabbavarnar
Sjómennskan í blóðinu nýtist í tónlistinni
Grípa þarf hjálpina þegar hún býðst
Næsta skref hjá Eyjagöngum: Borinn kominn á Landeyjasand
Skipað í ráð og nefndir Vestmannaeyjabæjar
„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.