Í gær fór fram Suðurlandskeppni í dúfuflugi. Var dúfunum sleppt á nýja hrauninu í Eyjum og keppnin snérist um að hvaða dúfa flygi á sem skemmstum tíma til sinna heimkynna, sem voru ýmsir staðir í Flóanum á Suðurlandi. Allar skiluðu dúfurnar sér á heimaslóð á um það bil 45 mínútum. Halldór Benedikt var viðstaddur þegar dúfunum var sleppt og hann tók viðtalið við einn dúfueigandann, Eyjamanninn Ragnar Sigurjónsson.