Fjölga á Akureyri en fækka í Eyjum
Vinnumálastofnun hefur ákveðið að loka útibúum sínum í Vestmannaeyjum, Sauðárkróki og á Húsavík. Starfsmönnum í Vestmannaeyjum og Húsavík hefur verið sagt upp frá 1. september og verður skrifstofunum lokað 1. desember næstkomandi. Enginn starfsmaður hefur verið á Sauðárkróki á þessu ári. �?etta er enn eitt opinbera starfið sem hverfur frá Vestmannaeyjum.
�??�?g er auðvitað mjög ósáttur við þessa ákvörðun og hef þegar rætt þetta við nokkra af þingmönnum kjördæmisins,�?? sagði Elliði Vignisson, bæjarstjóri. �??�?jónusta Vinnumálastofnunar er auðvitað afar mikilvæg hér í Eyjum eins og víðar. �?essi þjónustustofnun heldur m.a. utan um skráð atvinnuleysi hér í Eyjum og vinnur að úrræðum fyrir atvinnulausa. �?g er líka mjög undrandi á því að á sama tíma og stjórnvöld slá sér á brjóst vegna flutnings Fiskistofu til Akureyrar til að fjölga opinberum störfum á landsbyggðinni, þá skuli sömu stjórnvöld vinna markvisst að því að leggja niður opinber störf og þjónustu hér í Eyjum. �?tli þetta merki ekki að í þessari viku verði tvö opinber störf flutt frá Eyjum því nú styttist í að ráðinn verði nýr framkvæmdastjóri yfir Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja. �?etta er skrýtin stjórnsýsla svo ekki sé meira sagt og kallar á harða gagnrýni og svör. Mín næstu skref í þessu máli er að vísa þessu til um-fjöllunar í bæjarráði og vinna síðan eftir ákvörðunum þess.�??

Nýjustu fréttir

TM mótið hefst á morgun
Afmælisdagarnir gáfu ömmunni milljónir
Koddaslagur systranna skilaði 500 þúsund til Krabbavarnar
Sjómennskan í blóðinu nýtist í tónlistinni
Grípa þarf hjálpina þegar hún býðst
Næsta skref hjá Eyjagöngum: Borinn kominn á Landeyjasand
Skipað í ráð og nefndir Vestmannaeyjabæjar
„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.