Vestmannaeyjahlaupið fer fram á laugardag
Hið árlega Vestmannaeyjahlaup verður haldið á laugardaginn næstkomandi. Hlaupið hefst klukkan 12:00 en boðið er upp á þrjár hlaupaleiðir, 5, 10 og 21 km hlaup. Tímataka verður í höndum fagmanna og fá allir keppendur númer. Markklukka er eins og áður við rásmarkið, efst á Brekkugötu. Búast má við góðri stemmningu í hlaupinu en Strandvegi verður lokað frá Eyjabúð í vestri og austur að Kirkjuvegi milli 12:15 og 13:15. Eyjamenn eru hvattir til að kíkja við á Strandveginum og hvetja hlauparana áfram, og reyndar gera það hvar sem er á eyjunni. Kári Steinn
Krakkahlaup
Bryddað verður upp á þeirri nýjung í ár að bjóa upp á krakkahlaup fyrir krakka á aldrinum 4 til 6 ára. Krakkahlaupið fer fram klukkan 11:15 og þurfa krakkarnir bara að mæta, ekki þarf að skrá krakkana í hlaupið. Hlaupið verður þægilegt og skemmtilegt, hlaupið upp Brekkugötuna og í mark.
Dagskrá
Föstudagur 5. september
Kl. 18-20 Gögn afhend í íþróttamiðstöð. Brautarverðir funda.
Laugardagur 6. september
10:00 Gögn afhend þeim sem eru nýkomnir.
10:45 Brautarverðir og aðstoðarfólk mæta í íþróttahús í morgunkaffi.
11:00 Tónlist við íþróttamiðstöð.
11:15 Krakkahlaup í Brekkugötunni 4-6 ára.
11:30 Upphitun og stemmning við ráspól.
11:30 Brautarverðir fara á sína staði.
12:00 Hlaup hefst: 5 km, 10 km, 21 km.
12:10 Boðið upp á kaffi við mark fyrir áhorfendur.
12:20 Fyrstu menn fara að koma í mark úr 5 km.
12:35 fyrstu menn fara að koma í mark úr 10 km.
13:30 Fyrstu menn fara að koma í mark úr 21 km.
Verðlaunaafhending og slit.

Nýjustu fréttir

Bein útsending: Staða ferðaþjónustunnar rædd við þingmenn
Skipulag við Strandveg 44 til bæjarstjórnar
Skjöldur í þriðja sinn 
Er verið að leggja landsbyggðarskatt á okkur?
Borkjarnar á fyrirhuguðu dýpi Eyjaganga betri en vænst var
Vilja vernda einstakt lífríki sunnan Íslands
Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna
Brottför seinni ferðar flýtt vegna versnandi veðurs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.