Kvennalið ÍBV tekur á móti ÍA í dag á Hásteinsvelli klukkan 14:00 í dag, sunnudag. ÍA er langneðst, með aðeins 1 stig eftir 15 leiki og ætti ekki að verða teljandi hindrun fyrir Eyjaliðið. 20 stiga munur er á liðunum en ÍBV er 7. sæti með 21 stig. Vinni ÍBV í dag, kemst liðið upp í 5. sæti, tímabundið í það minnsta, þar sem Valur er í 6. sæti með 22 stig og Selfoss er í 5. sæti með 23 en bæði lið spila á morgun, mánudag.
Næst síðasti leikur ÍBV í Íslandsmótinu er einmitt á útivelli gegn Val og í síðasta leiknum, tekur ÍBV á móti Breiðabliki.