Störfum til sjós fækkað
Staða sjómanna í Vestmannaeyjum hefur versnað undanfarna mánuði og misseri. Störfum til sjós hefur fækkað, tekist er á um verð á uppsjávarfiski til sjómanna og mönnunarmál eru þeim óhagstæð. Íslenskir sjómenn sem fylgdu skipum til Grænlands hafa borið skarðan hlut frá borði auk þess sem þeir eru settir á grænlenska kennitölu og tapa við það félagslegum réttindum sínum á Íslandi.
�??Já, það er rétt að sjómönnum er að fækka á Vestmannaeyjaflotanum. Í vor var um 50 sjómönnum sagt upp hjá Ísfélaginu og hættu þeir um Sjómannadag. Skip Ísfélagsins, Guðmundur VE og �?orsteinn �?H eru nú gerðir út af grænlensku félagi sem að hluta er í eigu Ísfélagsins. Einhverjir sjómenn fylgdu með en margir eru hættir vegna lélegra launa. �?á sagði Vinnslustöðin fyrir skömmu upp áhöfninni á Stíganda VE sem verður lagt, a.m.k. tímabundið,�?? segir Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannafélagsins Jötuns þegar Eyjafréttir báru undir hann stöðu sjómanna í Vestmannaeyjum.
Í Jötni eru undirmenn á fiskiskipum og um síðustu áramót voru 270 skráðir félagar í fullu starfi sem sjó­menn. Í allt segir Valmundur að um 500 sjómenn séu líklega á skipum frá Vestmannaeyjum ef allt er talið. Valmundur segir alltaf gaman að fagna nýjum og fullkomnum skipum en sá böggull fylgi skammrifi að færri þurfi í áhöfn. Bitnar þetta einkum á undirmönnum. �??�?egar Ísfélagið keypti Sigurð VE seldi það bæði Guðmund VE og �?orstein �?H til Grænlands. Á Sigurði eru tveir hásetar en á Guðmundi voru tíu til tólf og eitthvað færri á �?orsteini. Yfirmenn finna líka fyrir þessu, einkum vélstjórar. �?g sé það, nú þegar árið er meira en hálfnað að tekjur sjómanna hafa líka lækkað. �?að sést á skilagreinum frá útgerðum sem nú eru að koma inn. Auðvitað er skýringin að hluta til lægra fiskverð en í fyrra en það skýrir ekki allt.�??
Hann segir þetta þvert á það sem ætla mætti þegar færri þarf í áhöfn, sérstaklega á uppsjávarskipunum. �??�?að helst ekki í hendur að launin hækki. �?ar fyrir utan hafa bæði Ísfélag og Vinnslustöðin borgað lægsta verðið á landinu í uppsjávarfiski. Stefnir í átök um þetta sem er ekki skemmtilegt,�?? segir Valmundur.

Nýjustu fréttir

Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.