Eyjamenn ekki í �?tsvari þetta árið
Vestmannaeyjar taka ekki þátt í spurningaþættinum vinsæla �?tsvari á R�?V þennan veturinn. Eyjamenn hafa sjaldnast riðið feitum hesti frá viðureignum sínum í keppninni, hafa aðeins einu sinni unnið ef minni blaðamanns er rétt en tvívegis komist áfram í 2. umferð, annað skiptið sem eitt af stigahæstu tapliðunum. �?að er þó ekki ástæðan fyrir því að Vestmannaeyjum er ekki boðið í þáttinn að þessu sinni. Gefum spurningahöfundi þáttanna, Stefáni Pálssyni orðið:
�??Nei, því miður eru Eyjamenn ekki meðal þátttökuliða að þessu sinni. Annað árið í röð var farin sú leið að gefa fleiri sveitarfélögum kost á að keppa en bara þeim 24 sem einokuðu hana fyrstu árin. �?að þýðir að liðin sem komust í fjórðungsúrslit árið á undan fá sjálfkrafa þátttökurétt, sem og þau lið úr hópi stærri sveitarfélaga sem ekki fengu að vera með í fyrra. Restin af sætunum var þá dregin út úr hópi fjölmennari kaupstaðanna annars vegar, en minni sveitarfélag fá fáein sæti sömuleiðis. �?etta þýðir að ef �?tsvarskeppnin verður haldin aftur að ári og sama fyrirkomulag viðhaft, þá munu Vestmannaeyingar vera meðal þátttökuliða.�??
Svo mörg voru þau orð. Nú er bara að velja sér annað sveitarfélag til að styðja í þáttunum vinsælu.

Nýjustu fréttir

Þórunn Pálsdóttir er Eyjamaður mánaðarins
MATEY: Vilhjálmur Sigurðarson með fágaðan og frumlegan seðil á Næs
Leita að fyrsta sigrinum gegn sterku liði Víkinga
Kíkt inn á kosningavökur framboðanna
Lokatölur: Sjálfstæðisflokkurinn með hreinan meirihluta
Fimm menn hjá D-lista samkvæmt fyrstu tölum
Kíkt í kosningakaffi framboðanna – myndir
Herjólfur stefnir á hefðbundna sjö ferða áætlun frá mánudegi
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.