Góður dagur í gær hjá ÍBV
�?að er ekki annað hægt að segja en að gærdagurinn hafi verið góður hjá handboltaliðum ÍBV. Kvennaliðið tók á móti Selfossi í Eyjum í gær og áttu gestirnir ekki möguleika í Suðurlandsslag Olísdeildar kvenna. ÍBV náði afgerandi forskoti um miðjan fyrri hálfleik og hélt Selfyssingum í nokkuð þægilegri fjarlægð frá sér. Staðan í hálfleik var 17:9 og strax í fyrri hálfleik voru varamenn ÍBV farnir að týnast inn á. Leiknum lauk svo með þriggja marka sigri, 27:24 en sigurinn var mun öruggari en lokatölur gefa til kynna. Mörk ÍBV gerðu þær Vera Lopes 6, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 5, Telma Silva Amado 3, Díana Dögg Magnúsdóttir 3, Drífa �?orvaldsdóttir 3, Ester �?skarsdóttir 3, Elín Anna Baldursdóttir 3, Arna �?yrí �?lafsdóttir 1.
Frábær sigur í Hafnarfirði
Liðin tvö sem mættust svo eftirminnilega í úrslitum Íslandsmótsins síðasta vor, ÍBV og Haukar, léku í Hafnarfirði í gær. Eyjamenn fóru mjög vel af stað í leiknum, komust í 3:13 en Haukar náðu smátt og smátt að saxa á forskotið þannig að staðan í hálfleik var 11:16. Haukar byrjuðu svo mjög vel í síðari hálfleik, jöfnuðu 16:16 en Eyjamenn tóku þá aftur við sér og unnu að lokum með þremur mörkum, 23:26. Mörk ÍBV gerðu þeir Theodórs Sigurbjörnsson 8, Einar Sverrisson 7, Andri Heimir Friðriksson 7, Svavar Kári Grétarsson 2, Guðni Ingvarsson 1, Grétar �?ór Eyþórsson 1.

Nýjustu fréttir

Sóley og Örlygur Helgi eru klúbbmeistarar GV 2026
Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram
Þóra Guðný og Sveinn flutt í nýja húsið
ÍBV mætir KR á Meistaravöllum í kvöld
Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.