Fundu áður óþekktar húsarústir í Herjólfsdal
Í sumar fengu �?ekkingarsetur, Sögusetur 1627 og Sögufélag Vestmannaeyja þá Bjarna F. Einarsson fornleifafræðing og Ármann Höskuldsson eldfjallafræðing til að fara yfir valin svæði í Herjólfsdal með jarðsjá til að sjá hvað þar gæti leynst undir sverðinum. Niðurstöður þessara rannsókna verða kynntar í Sagnheimum á laugardaginn klukkan 15:00.
�??�?g á eftir að sjá lokaniðurstöður sjálfur en ég veit þó að við fundum þarna mikið af húsarústum sem ekki var vitað um áður,�?? sagði Bjarni í samtali við Eyjafréttir. �??Við skoðuðum sem sagt fjögur svæði í Herjólfsdal, sunnan-, vestan- og austanmegin við rústirnar og alls staðar fundum við húsarústir. Hugsanlega eru þarna enn fleiri rústir, t.d. undir bílastæðinu en það er ómögulegt að segja það með fullri vissu. �?að er hægt að sjá frumniðurstöðu mælinganna strax á staðnum en síðan verður að vinna gögnin betur svo það fáist betri niðurstaða. Mér var lofað að þau gögn yrðu tilbúin um helgina,�?? sagði Bjarni og verður því væntanlega með spennandi tíðindi fyrir Eyjamenn um frumbyggja Vestmannaeyja.

Nýjustu fréttir

MATEY: Vilhjálmur Sigurðarson með fágaðan og frumlegan seðil á Næs
Leita að fyrsta sigrinum gegn sterku liði Víkinga
Kíkt inn á kosningavökur framboðanna
Lokatölur: Sjálfstæðisflokkurinn með hreinan meirihluta
Fimm menn hjá D-lista samkvæmt fyrstu tölum
Kíkt í kosningakaffi framboðanna – myndir
Herjólfur stefnir á hefðbundna sjö ferða áætlun frá mánudegi
ÍBV mætir FH í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.