Safnahelgin hefst í dag
Safnahelgin verður haldin um helgina. Dagskrá Safnahelgarinnar er fjölbreytt eins og svo oft áður. �?essa daga verður boðið upp tónlist, myndlist, upplestur, sem og barna- og unglingadagskrá. �?á verða stórtónleikar í Eldheimum með þeim Jóhanni Sigurðarsyni leikara og söngvara ásamt Pálma Sigurhjartarsyni píanóleikara í kvöld. Bæjarlistamaðurinn Gíslína Dögg Bjarkadóttir mun opna myndlistasýningu í Safnahúsi, skyggnst verður undir svörðinn í Herjólfsdal, boðið upp á bókalestur, sögustund, ratleik fyrir börn í Sagnheimum og margt fleira.
Á Safnahelginni í ár er lögð sérstök áherslu á dagskrá fyrir og með börnum og unglingum.
Dagskráin hefst í dag kl. 17.00 með opnun myndlistarsýningar Myndlistarfélags Vestmannaeyja í Alþýðuhúsinu. Sýningin er tileinkuð minningu Ása í Bæ. Í Safnahúsinu verða á sama tíma ljósmyndir Gísla Friðriks Johnsen sýndar í samstarfi við börn Gísla sem nýlega gáfu ljósmyndasafnið hingað til Eyja.
Tónskemmtun í Eldheimum
Í kvöld er svo dagskrá í Eldheimum. Jóhann Sigurðarson syngur lög úr söngleikjum við undirleik Pálma Sigurhjartarsonar píanóleikara. Jóhann og Pálmi hafa spilað saman um langt skeið, komið víða fram bæði í leikhúsi og við ýmiskonar skemmtanir. Dagskráin sem þeir flytja að þessu sinni kalla þeir Lögin úr leikhúsinu, blanda af íslenskum og erlendum leikhúslögum við texta eftir íslenska höfunda. Meðal annars verða flutt lög úr Fiðlaranum á þakinu, Vesalingunum, Carusell, úr revíum, og skemmtidagskrám, gamanmál, og eftirhermur fylgja með. Dagskráin hefst á tónleikum gítarsveitar Tónlistarskóla Vestmannaeyja undir stjórn Eyvindar Inga Steinarssonar.
Formleg opnun Safnahelgarinnar verður að vanda í Stafkirkjunni á föstudeginum.
Fjölbreytt dagskrá verður á laugardeginum í Safnahúsinu. Illugi Jökulsson spjallar um og les úr knattspyrnubókum sínum. Gísli Pálsson og Kristín Marja Baldursdóttir lesa út nýjum verkum sínum. Bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2014, Gíslína Dögg Bjarkadóttir, sýnir í framhaldinu skyssur sínar sem eru kynning á stærri sýningu tileinkaðri bók Kristínar Marju �??Karítas án titils.�?? Í Sagnheimum verða kynntar niðurstöður jarðsjárrannsókna í Herjólfsdal. Um kvöldið leikur hið eina sanna húsband á Vinaminni.
Í Sæheimum verður sýningin �??Blóm á Heimaey�?? opin laugardag og sunnudag.
Dagskránni lýkur á sunnudeginum í Sagnheimum með sögustund, ratleikjum og teiknimyndasamkeppni.
Dagskránna má sjá í heild sinni hér að neðan:
Fimmtudagur 30. okt
Ingólfsstofa, Safnahúsi Vestmannaeyja.
Ljósmyndasýning Gísla Friðriks Johnsen (1906-2000). Börn Gísla Friðriks afhentu spjalla við gesti ásamt starfsmönnum
Ljósmyndasafns Vestmannaeyja.
Alþýðuhúsið kl. 17.00
Opnun á sýningu Myndlistarfélags Vestmannaeyja �??Ási í Bæ 100 ára�??.
Einnig opið föstud., laugard. og sunnud., frá 14 til 18
kl. 20.00 ELDHEIMAR
Sögur og lög í leikhúsi
Jóhann Sigurðarson söngvari og leikari syngur lög úr söngleikjum og segir valdar sögur úr leikhúsinu. Pálmi Sigurhjartarson leikur á píanó. Aðgangseyrir kr. 2.000.-
Tónleikarnir hefjast með leik gítarsveitar Tónlistarskóla Vestmannaeyja stjórnandi Eyvindur Ingi Steinarsson.
Föstudagur 31. okt.
kl. 17.00 í Stafkirkjunni.
Setning Safnahelgarinnar 2014. Sr. Guðmundur �?rn Jónsson og Kristín Jóhannsdóttir. Jarl Sigurgeirsson og nokkrir félagar úr Lúðrasveit Vestmannaeyja leika.
kl. 21.00 í Vinaminni .
H�?SBANDIÐ – Arnór, Helga, m.m.- leikur og syngur. Eldhúsið opið til kl. 21.00
Laugardagur 1. nóv.
kl. 11.00 Einarsstofa, Safnahúsi Vestmannaeyja.
Illugi Jökulsson rithöfundur kynnir og les upp úr sínum frábæru knattspyrnubókum. Fyrir börn á öllum aldri.
kl. 13. Einarsstofu, Safnahúsi Vestmannaeyja.
Lestur úr nýjum bókum. Gísli Pálsson les úr bók sinni �??Hans Jónatan, maðurinn sem stal sjálfum sér�?? og Illugi Jökulsson les úr framhaldi sínu af bókinni �??Háskí í hafi�?? sem nú er að koma út.
Í beinu framhaldi:
Sýningin �??Konur í þátíð�??. Gíslína Dögg Bjarkadóttir bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2014. Um er að ræða skissusýningu sem ætlað er að kynna stærri sýningu sem haldin verður í vor. Efnið er sótt til skáldverksins Karítas án titils eftir Kristínu Marju Baldursdóttur.
kl. 15. Sagnheimum, byggðasafni.
Bjarni Einarsson fornleifafræðingur kynnir niðurstöður sínar og dr. Ármanns Höskuldssonar eldfjallafræðings á jarðsjárs-könnun í Herjólfsdal sem gerð var nýlega að frumkvæði �?ekkingarseturs, Söguseturs 1627 og Sögufélags Vestmannaeyja.
�?jóðminjasafnið sýnir valda gripi úr uppgreftri Margrétar Hermanns- Auðardóttur frá 1971-1980.
Sunnudagur 2. nóv.
kl. 14. Sagnheimum, byggðasafni.
Vilborg og hrafninn í Herjólfsdal.
Sögustund í Sagnheimum og ratleikur.
Teiknimyndasamkeppni úr sögunni kynnt.
Opið Laugardag og sunnudag kl. 13.00-16.00 í Sæheimum, fiskasafni.
Sýningin �??Blóm á Heimaey�?? Ljósmyndasýning á helstu blómaplöntum sem finnast á Heimaey.
Opið í Eldheimum alla helgina frá 13.00 �?? 17.00

Nýjustu fréttir

MATEY: Vilhjálmur Sigurðarson með fágaðan og frumlegan seðil á Næs
Leita að fyrsta sigrinum gegn sterku liði Víkinga
Kíkt inn á kosningavökur framboðanna
Lokatölur: Sjálfstæðisflokkurinn með hreinan meirihluta
Fimm menn hjá D-lista samkvæmt fyrstu tölum
Kíkt í kosningakaffi framboðanna – myndir
Herjólfur stefnir á hefðbundna sjö ferða áætlun frá mánudegi
ÍBV mætir FH í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.