Tækifæri og áskoranir sameinaðar stofnunar
Forstjóri HSU:
�??�?g hef átt fundi með fulltrúum Velferðarráðuneytis og farið yfir fjárlög og rekstrarstöðu nýrrar Heilbrigðisstofunnar Suðurlands og mun í næstu viku eiga í áframhaldandi samstarfi við ráðuneytið um lausn mála er snúa að sameiningu og rekstri á stofnuninni. Í morgun átti ég, ásamt forstjórum annarra heilbrigðisstofnanna af landsbyggðinni, fund með fjárlaganefnd Alþingis og alþingismönnum og áttum við afar góðan fund þar sem rædd voru málefni stofnanna sem nú eru að sameinast í þremur heilbrigðisumdæmum, þar á meðal á Suðurlandi og hvaða tækifæri og áskoranir blasa nú við í þjónustu við sjúklingi og rekstri stofnanna. Í framhaldi af þeim fundi verður unnið markvisst að halda til haga þeim kostnaði sem hlýst að sameiningunni.
�??�?g tel það skyldu mína og hlutverk að upplýsa íbúa Suðurlands um stöðu mála hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands og hvaða breytingar og verkefni eru nú eru nú í gangi hjá stofnuninni í tengslum við sameiningarferlið og þróun þjónustunnar�??.
Tæki, búnaður og tölvukerfi
Til að stofnunin geti sinnt sínu lögbundna hlutverki þarf að endurnýja þau rannsóknartæki sem hafa verið biluð á starfstöðvum stofnunarinnar undanfarin misseri. Í samvinnu við Velferðarráðuneytið er verið er að skoða möguleika á að nýta fé sem er eyrnamerkt stofnuninni til að eiga upp í kostnað við að fjárfesta annars vegar í nýju röntgentæki á Selfossi og hins vegar í nýju CT tæki í Vestmannaeyjum. Bæði á Selfossi og eins í Vestmannaeyjum hefur verið söfnun í gangi í samfélaginu fyrir nýjum tækjum en einnig mun leitað allra leiða við að losa fé sem stofnunin hefur á sínum fjárlagalið til að leysa úr þessar brýnu þörf. �?að mun stórbæta þjónustuna og auka gæði og öryggi og minnka annan kostnað t.d. samhliða sjúkraflutningum.
Forstjóri hefur einnig átt fundi með verkefnastjórum um upplýsingatækni hjá Embætti Landlæknis og staðfesti að fljótlega verður hafist handa við að sameina þrjá gagnagrunna Sögukerfisins í umdæminu í einn sameiginlegan gagnagrunn fyrir sjúkraskrána á stofnuninni. �?að mun stórbæta aðgengi að heilsufarsupplýsingum sjúklinga og tryggja samfellu í þjónustu við sjúklinga. Einnig blasa við ný tækifæri fyrir þjónustuþega Heilbrigðisstofnunar Suðurlands þegar aðgangur opnast að heilsuvefnum Veru sem gerir almenningi kleift að sjá gögn úr eigin sjúkraskrá, s.s. bólusetningar, óútleysta lyfseðla og lyfseðla sem leystir hafa verið út síðustu þrjú ár ásamt skráðum ofnæmisupplýsingum. Íbúar geta þá átt í öruggum samskiptum við heilbrigðisstarfsmenn í gegnum Veru. Í Veru mun verða hægt að bóka tíma á heilsugæslu og einstaklingur getur óskað eftir endurnýjum á ákveðnum lyfjum í gegnum Veru. Vera er aðgengileg með rafrænum skilríkjum
Framkvæmdastjórn og starfsmannamál
Vegna sameiningar stofnanna verður ekki hjá því komist að leggja niður starf framkvæmdastjóra hjúkrunar og lækninga hjá fyrrverandi stofnunum og voru störf framkvæmdastjóra hjúkrunar og lækninga hinnar nýju sameinuðu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands auglýst nú um síðustu helgi laus til umsóknar. Engum starfsmanni og þar með talið stjórnendum hefur verið sagt upp störfum en ljóst er að breytingar munu verða á störfum og hlutverki einhverra starfsmanna. Verið er að vinna í nýju skipuriti fyrir stofnunina og fyrstu drög að skipuriti munu liggja fyrir í næstu viku. Kynnt verður nýtt skipurit fyrir starfsfólki í desember. Jafnframt styttist í að nýtt logo verði valið fyrir Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Eins og áður hefur komið fram á opinberum vettvangi þá hefur sólarhringsvakt og bráðavakt skurðlæknis, svæfingalæknis og skurðhjúkrunarfræðings ekki verðið starfrækt í Vestmanneyjum í rúmt ár vegna fjárskorts. Skurðlæknir og skurðhjúkrunarfræðingur hafa starfað við stofnunina í dagvinnu og sinnt speglunum og minni aðgerðum sem ekki krefjast svæfinga. Skurðlæknir í Vestmannaeyjum hefur verið í 100% stöðugildi en hann hefur nú óskað eftir að fara niður í 25% starfshlutfall og mun því á næstu mánuðum vera við störf fjórðu hverja viku. Hefur verið ákveðið að verða við þessari ósk án þess að það feli í sér að ákvörðun hafi verið tekin um að minnka stöðugildi skurðlæknis sem slíkt.
Starfsmannamál og mönnunarþörf á stofnuninni í heild sinni er í endurskoðun og mun taka hliðsjón af þeirri þjónustustýringu sem ný framkvæmdastjórn mun leggja áherslu fyrir nýja stofnun.
Hvað verður um þjónustuna?
Nú fram til áramóta verður aðaláhersla lögð á að ljúka þeim verkefnum sem snúa að sameiningu á rekstri og stjórnskipulagi stofnunarinnar. Á nýju ári mun skýrast hvaða þjónusta verður veitt á hvaða starfstöð og mun ekkert breytast í þeim efnum nú fyrst um sinn. Markmiðið er að efla þjónustna og auka samhæfingu og samfellu í þjónustu til lengri tíma. Á nýrri stofnun munu skapast fjölmörg tækifæri við að efla þjónustu fyrir stærstu sjúklingahópana á Suðurlandi. Áfram verður lögð áhersla á að sinna grunnheilbrigðisþjónustu ásamt sérhæfðri þjónustu eins og viðeigandi er á hverjum stað. Meðal þeirra möguleika sem verið er að skoða er hvort hægt sé fá aðra skurðlækna og með önnur sérsvið, s.s. kvensjúkdómalækningar, geðlækningar, sérhæfðar lyflækningar og barnalækningar til að sinna reglulegri þjónustu á starfstöðvum stofnunarinnar, t.d. í Vestmannaeyjum. Áætlanir um slíka þjónustu verða kynntar á fyrri hluta árs 2015. Forstjóri leggur áherslu á að koma öllum upplýsingum um þjónustu jafnóðum til íbúa á öllu svæðinu og óskar eftir öflugu samstarfi við alla hagsmunaaðila.

Nýjustu fréttir

Þóra Guðný og Sveinn flutt í nýja húsið
ÍBV mætir KR á Meistaravöllum í kvöld
Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.