Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands ritar grein á vef Vestmannaeyjaútibúsins, þar sem hún kynnir þau verkefni sem yfirstjórnin vinnur nú að í sameiginlegri stofnun. Hún segir m.a. að Smári skurðlæknir verði framvegis í 25% starfi á sjúkrahúsinu, vinni fjórðu hverja viku. �?á segir hún að á nýju ári muni skýrast hvaða þjónusta verði veitt í hverju útibúa Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.Grein hennar er svohljóðandi:
Framkvæmdastjórn og starfsmannamál
Vegna sameiningar stofnanna verður ekki hjá því komist að leggja niður starf framkvæmdastjóra hjúkrunar og lækninga hjá fyrrverandi stofnunum og voru störf framkvæmdastjóra hjúkrunar og lækninga hinnar nýju sameinuðu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands auglýst nú um síðustu helgi laus til umsóknar. Engum starfsmanni og þar með talið stjórnendum hefur verið sagt upp störfum en ljóst er að breytingar munu verða á störfum og hlutverki einhverra starfsmanna. Verið er að vinna í nýju skipuriti fyrir stofnunina og fyrstu drög að skipuriti munu liggja fyrir í næstu viku. Kynnt verður nýtt skipurit fyrir starfsfólki í desember. Jafnframt styttist í að nýtt logo verði valið fyrir Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Eins og áður hefur komið fram á opinberum vettvangi þá hefur sólarhringsvakt og bráðavakt skurðlæknis, svæfingalæknis og skurðhjúkrunarfræðings ekki verðið starfrækt í Vestmanneyjum í rúmt ár vegna fjárskorts. Skurðlæknir og skurðhjúkrunarfræðingur hafa starfað við stofnunina í dagvinnu og sinnt speglunum og minni aðgerðum sem ekki krefjast svæfinga. Skurðlæknir í Vestmannaeyjum hefur verið í 100% stöðugildi en hann hefur nú óskað eftir að fara niður í 25% starfshlutfall og mun því á næstu mánuðum vera við störf fjórðu hverja viku. Hefur verið ákveðið að verða við þessari ósk án þess að það feli í sér að ákvörðun hafi verið tekin um að minnka stöðugildi skurðlæknis sem slíkt.
Starfsmannamál og mönnunarþörf á stofnuninni í heild sinni er í endurskoðun og mun taka hliðsjón af þeirri þjónustustýringu sem ný framkvæmdastjórn mun leggja áherslu fyrir nýja stofnun.
Hvað verður um þjónustuna?
Nú fram til áramóta verður aðaláhersla lögð á að ljúka þeim verkefnum sem snúa að sameiningu á rekstri og stjórnskipulagi stofnunarinnar. Á nýju ári mun skýrast hvaða þjónusta verður veitt á hvaða starfstöð og mun ekkert breytast í þeim efnum nú fyrst um sinn. Markmiðið er að efla þjónustuna og auka samhæfingu og samfellu í þjónustu til lengri tíma. Á nýrri stofnun munu skapast fjölmörg tækifæri við að efla þjónustu fyrir stærstu sjúklingahópana á Suðurlandi. Sú nýjung verður í þjónustunni á Selfossi að opnuð verður í byrjun desember göngudeild á Selfossi með áherslu á þjónustu og meðferð fyrir nýrna- og krabbameinssjúklinga. Áfram verður lögð áhersla á að sinna grunnheilbrigðisþjónustu ásamt sérhæfðri þjónustu eins og viðeigandi er á hverjum stað. Meðal þeirra möguleika sem verið er að skoða er hvort hægt sé fá aðra skurðlækna og með önnur sérsvið, s.s. kvensjúkdómalækningar, geðlækningar, sérhæfðar lyflækningar og barnalækningar til að sinna reglulegri þjónustu á starfstöðvum stofnunarinnar, t.d. í Vestmannaeyjum. Áætlanir um slíka þjónustu verða kynntar á fyrri hluta árs 2015. Forstjóri leggur áherslu á að koma öllum upplýsingum um þjónustu jafnóðum til íbúa á öllu svæðinu og óskar eftir öflugu samstarfi við alla hagsmunaaðila.