�?órarinn Ingi til FH
�?órarinn Ingi Valdimarsson er á förum frá ÍBV til FH, félögin hafa náð samkomulagi um leikmannin í dag. �?skar �?rn �?lafsson, formaður knattspyrnuráðs staðfesti þetta í samtali við Eyjafréttir. �?órarinn spilaði seinni hluta tímabils með ÍBV en var áður í láni hjá Sarpsborg í eitt og hálft ár. �?órarinn hefur spilað 133 leiki fyrir ÍBV og skorað í þeim 20 mörk. Hann hefur einnig verið viðloðandi A-landslið karla.
Margir sterkir leikmenn hafa yfirgefið karlalið ÍBV í fótbolta að undanförnu. Eyjafréttir heyrðu í Jóhannesi Harðarsyni sem er nýráðinn þjálfari ÍBV þar sem hann fór yfir leikmannamálin. �??�?g tel okkur hafa nokkuð góða stjórn á hlutunum, það er ekkert sem hefur komið á óvart hvað varðar leikmannamálin. Við vissum að það væri líklegt að Brynjar Gauti myndi yfirgefa liðið og að þó nokkrar líkur væru á því að �?órarinn myndi yfirgefa liðið.�?? Jóhannes sagði að mikil eftirsjá væri eftir báðum leikmönnunum en sérstaklega �?órarni. �??Við litum á �?órarinn sem lykilmann og ætluðum að byggja á honum, en hann var ekki tilbúin í aðra uppbyggingu með liðinu. Hann hafði gert okkur ljóst að hann vildi fyrst og fremst fara út í atvinnumennsku sem er skiljanlegt. �?egar ég ræddi við hann fyrir stuttu tjáði hann mér að hann vildi fara í lið sem væri að berjast um titla og taldi ÍBV ekki vera í þeim hópi á næsta tímabili. Við fengum svo gott tilboð frá FH og þetta varð niðurstaðan, tilboðið var þess eðlis að við fáum svigrúm núna til að leita eftir öðrum leikmanni jafnvel tveim,�?? sagði Jóhannes og óskaði Brynjari Gauta og �?órarni Inga góðs gengis og velfarnaðar hjá nýjum félögum.
Viðtalið við Jóhannes þjálfara ÍBV má sjá í heild sinni í næsta tölublaði Eyjafrétta

Nýjustu fréttir

Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.