�?að var 24. febrúar árið 1974 að Magnús Sveinsson og Sjöfn Sigurbjörnsdóttir kona hans, slóu til og keyptu verslunina Klett af Olíuverslun Íslands. Verslun sem við í daglegu tali köllum sjoppu. Og allt síðan þá hefur Magnús og kona hans rekið sjoppuna með miklum myndarbrag. Nú í ár eru því liðin rúm 40 ár frá því þau keyptu Klett og sennilega er engin verslun í Eyjum í dag, sem hefur starfað lengur í eigu sömu aðila. Á Klett þykir gott að koma enda Magnús skrafhreyfinn og jákvæður svo eftir er tekið. Eitt sinn var sögð saga af manni sem stundum fann til leiða með sjálfum sér. Hann sagði frá því að þá þætti honum gott að koma við Kletti og taka spjall við Magnús, því hann sæi bara það jákvæða í lífinu og út sagðist maðurinn alltaf fara glaður.
Nú um helgina býður Klettur sérstakt 40 ára afmælistilboð á prins póló, pylsum og kóki í dós og ís í brauði og fær hver og einn viðskiptavinur eitthvað uppbyggilegt spjall í kaupbæti. Á myndinni eru þrír ættliðir; Magnús og sonur hans Sveinn ásamt Agnesi Líf dóttur Sveins.