Fjölmennt á helgileik í Landakirkju
Árlegur helgileikur fór fram í sunnudagaskóla Landakirkju Vestmannaeyja í morgun. Samkvæmt venju fluttu nemendur í 5. bekk Grunnskóla Vestmannaeyja verk um fæðingu Jesú. Kirkjan var þéttsetin á báðum hæðum.
Á meðfylgjandi myndbandi sem Sighvatur Jónsson tók er brot úr jólasálminum Heims um ból sem var lokalag helgileiksins. Flutningurinn þótti takast með eindæmum vel. Kirkjugestir höfðu á orði að nemendur fimmtu bekkjanna þriggja myndu sóma sér vel í barnakór.

Nýjustu fréttir

Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.