Varðskipið Týr í stórræðum í Miðjarðarhafinu
Kristófer Helgason kokkur á Álsey VE fékk smáfrí frá kokkastörfum þar um borð og réð sig á varðskipið Tý í nokkrar vikur, sem nú er í Miðjarðarhafinu. Hann sendi eftirfarandi kveðju heim til Eyja nú um áramótin.
Gleðilegt ár elsku fjölskylda, ættingjar og vinir héðan úr Miðjarðarhafinu í sannkallaðir íslenskri vetrabrælu og það er ekki djók 30 á ms og í allskonar uppákomu þá hefur þessi dagur verið viðurðarríkur og fer í reynslubankann. Við hér um borð í Týr frestum áramótunum okkar um einhverja daga, en veislumatur og svoleiðis var reynt að gera góð skil þrátt fyrir leiðinda aðstæður þá held ég að það hafi tekist ágætlega. En við fáum vonandi betra veður á morgun og höfum tíma til að njóta humars og nautasteik í betra næði…en ekkert er öruggt með svoleiðis svo mikið er víst það hef ég núna reynt…því það er alltaf eitthvað nýtt. En ég kasta á ykkur kveðju mína héðan úr koju minni með tærnar upp í loft eftir töff dag í eldhúsinu . Hlakka til að vakna á næsta ári og byrja á að takast á við það með bjartsýni, góðar óskir og væntingar um gæfuríkt ár til handa mér og mínum eins og ykkur öllum hér kveðja Kristó …sem FER alveg að fara að hátta svo yfir og út núna skála við ykkur sum seinna góða nótt sé ykkur á næsta ári
Staðið í stórræðum í Miðjarðarhafinu:
�?að verður æ al­geng­ara að skip sem flytja flótta­menn um Miðjarðar­hafið séu lát­in sigla á sjálf­stýr­ingu án áhafn­ar, þannig að ef eitt­hvað kem­ur upp á eru þau í raun stjórn­laus. Í nótt fóru áhafn­ar­meðlim­ir varðskips­ins Týs um borð í flutn­inga­skipið Eza­deen og settu það í tog, en það sigldi stjórn­laust án áhafn­ar í slæmu veðri. Búið var að fylgj­ast með skip­inu í nokk­urn tíma, en það átti upp­haf­lega að fara frá Kýp­ur til Frakk­lands.
Hrafn­hild­ur Brynja Stef­áns­dótt­ir, upp­lýs­inga­full­trúi Land­helg­is­gæsl­unn­ar, seg­ir í sam­tali við mbl.is að svo virðist vera sem stærri og stærri skip séu notuð í svona flutn­inga. Venju­lega sé um að ræða ein­stak­linga eða skipu­lögð glæpa­sam­tök sem taki al­eigu fólks upp í farmiða og svo séu skip­in send af stað. Hún seg­ir að sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá áhöfn Týs hafi ástand um borð í flutn­inga­skip­inu verið ágætt eft­ir að mat­væl­um og vatni hafi verið komið til fólks­ins. �?að hafi aft­ur á móti verið bæði mat­ar- og vatns­laust í nokkra daga þar á und­an.
Um borð í varðskip­inu eru menntaðir sjúkra­flutn­inga­menn sem fóru um borð í flutn­inga­skiptið. Hrafn­hild­ur seg­ir að þeir hafi gert að ein­hverj­um minni­hátt­ar meiðslum, en ekk­ert aðkallandi hafi komið upp.
Mjög slæmt veður er á þess­um slóðum og seg­ir Hrafn­hild­ur að ferðin sæk­ist illa. Gert er ráð fyr­ir að skipið muni koma til hafn­ar seinni part­inn í dag.
Mik­ill fjöldi fólks drukkn­ar ár hvert á þess­um ferðum, en mikið er einnig um að litl­ir bát­ar sem ekki eru gerðir fyr­ir lengri sigl­ing­ar séu notaðir. Eru þeir einnig oft­ast yf­ir­full­ir af fólki sem leit­ar betra lífs norðan Miðjarðar­hafs­ins.
Varðskipið Týr hef­ur und­an­far­in sex ár komið að gæslu á Miðjarðar­haf­inu á veg­um Frontex landa­mæra­eft­ir­lits­ins, en það hélt utan í lok nóv­em­ber. Á rúm­lega mánuði hef­ur varðskipið komið að fjór­um mál­um sem svipa til þessa máls.
Hrafn­hild­ur seg­ir að í tveim­ur til­fell­um hafi þurft að setja skip­in í tog, en að í þriðja skiptið hafi skipi sem gat sjálft siglt verið fylgt í höfn. Í heild hef­ur fjöldi farþega í þessi fjög­ur skipti verið um tvö þúsund að sögn Hrafn­hild­ar.
Flótta­fólkið er flutt til þess lands sem á land­helgi þar sem skipið er stöðvað í, en það fer í flest­um til­fell­um í flótta­manna­búðir á viðkom­andi stað. Hrafn­hild­ur seg­ir að í þetta skiptið fari það til Ítal­íu, en þar muni svo þarlend stjórn­völd taka ákvörðun um fram­hald máls­ins og það sé í raun úr hönd­um Týs.

Nýjustu fréttir

Hátt í 50 metrar á Stórhöfða
Samgöngur  við Eyjar settar í hættu?
Gamla myndin – Kartöflugarðar í Eyjum 
Landsbankinn og N1 bætast í hluthafahóp Eyjaganga
Eló heldur tónleika í Eyjum
Þórunn Sveinsdóttir VE kveður Eyjar
Rauði krossinn í Eyjum fagnaði 85 árum með opnu húsi
Sveiflur í veðri og ógnar brim
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.