Frábærar fréttir bárust rétt í þessu úr herbúðum ÍBV en Ester �?skarsdóttir og Magnús Stefánsson, fyrirliðar ÍBV framlengdu í dag bæði samning sinn við félagið. Ester er uppalin hjá félaginu en snéri heim árið 2010 og hefur leikið með ÍBV síðan þá. Magnús gekk til liðs við félagið árið 2011 en hann hafði áður leikið með KA, Akureyri og Fram.
Bæði skrifuðu þau undir eins árs samning og var samningurinn undirritaður hjá umboðsmanni �?lgerðarinar í Vestmannaeyjum, Heildverslun Karl Kristmanns sem hefur verið einn aðalstyrktaraðili ÍBV undanfarin ár.
Ester hefur verið mikilvægur hluti af ÍBV liðinu síðan hún gekk til félagsins og er frábær leiðtogi, á þessu tímabili var Ester markahæsti leikmaður ÍBV ásamt Veru Lopes og skoruðu þær 122 mörk hvor. Ester hefur skorað yfir 100 mörk á hverju tímabili síðan hún gekk til liðs við ÍBV fyrir utan tímabilið 2013 þegar Bríet �?sk, dóttir þeirra kom í heiminn, en þá lék Ester örfáa leiki undir lok tímabilsins.
Magnús hefur verið mikilvægur hlekkur í íslands- og bikarmeistaraliði ÍBV en Magnús hefur spilað frábærlega í vörn liðsins, sem hefur reynst mörgum liðum erfið viðureignar. Magnús er frábær leiðtogi innan vallar sem utan og lykilmaður í liðinu. Magnús gat ekki beitt sér af krafti undir lok tímabilsins en hann glímdi við meiðsli. Hann mun því koma tvíelfdur til baka á næsta tímabili. Magnús skoraði 40 mörk á síðasta tímabili fyrir ÍBV.