Fæðingar hér og fæðingar þar
Fæðingarstöðum á Íslandi hefur fækkað hin síðari ár. Í svo fámennu og dreifbýlu landi sem Ísland er, er skiljanlegt að erfitt sé að halda úti fæðingarþjónustu á hverjum stað. Engu að síður verðum við að tryggja jöfnuð á milli þegna landsins og því verður kerfið að vera skipulagt á þann hátt, að komið sé til móts við fólk sem ekki á kost á fæðingarþjónustu í heimabyggð. Ein leið væri til dæmis sú að breyta núverandi löggjöf um fæðingarorlof, en ég lagði fram frumvarp þess efnis á yfirstandandi vorþingi.
Löng bið
Verðandi foreldrar á landsbyggðinni sem búa fjarri fæðingarþjónustu eða/og búa við þær landfræðilegu aðstæður að samgöngur eru ótryggar, þurfa yfirleitt að fara að heiman nokkru fyrir áætlaðan fæðingardag. �?etta á t.d. við um íbúa í Vestmannaeyjum og Höfn í Hornafirði. Yfirleitt er miðað við 38. viku meðgöngu nema um áhættumeðgöngu sé að ræða. Börnin koma þegar þeim hentar þannig að foreldrar geta lent í því að bíða fæðingar í allt að 4 vikur, fram að 42. viku en þá eru konur yfirleitt gangsettar.
Réttlætismál
Núverandi kerfi felur í sér óásættanlegan ójöfnuð á milli landshluta. Verðandi foreldrar á landsbyggðinni þurfa t.d. oft að hefja töku fæðingarorlofs fyrr, af ofangreindum ástæðum og þá dregst sá tími, þ.e. biðtíminn eftir barninu, frá orlofinu. �?annig að barn og foreldrar njóta styttri samveru þegar barnið kemur loksins í heiminn. Með því að breyta lögum um fæðingarorlof gætum við tryggt rétt barna til að njóta jafnlangs tíma með foreldrum sínum eftir fæðingu eins og þau börn sem eiga heima í nágrenni við fæðingarþjónustu.
Hár dvalarkostnaður
Annað atriði sem ég tel þurfa að huga betur að er dvalarkostnaður þeirra sem þurfa að fara að heiman vegna barnsfæðinga og eiga ekki ættingja eða vini sem geta hýst þá meðan á biðinni stendur. Ein leið væri að bæta við rýmum á sjúkrahótelum á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá mér um fæðingarþjónustu (http://www.althingi.is/ altext/144/s/1073.html) kom m.a. fram að fyrirhuguð er bygging sjúkrahótels við Landspítalann nú á þessu ári og í undirbúningi er aðstaða fyrir fólk á sjúkrahóteli á Akureyri. �?annig að svo virðist sem hlutirnir séu að mjakast í rétta átt, sem er vel. �?að er mín skoðun að á meðan hið opinbera getur ekki útvegað fólki dvalarstað á sjúkrahóteli, verði að koma til móts við fólk með fjárstyrk vegna dvalarkostnaðar í nágrenni við fæðingarstað. Fólk á ekki að gjalda þess að búa fjarri fæðingarstöðum. Frumvarp um breytingu á lögum um fæðingarorlof: http://www.althingi.is/ altext/144/s/1089.html

Nýjustu fréttir

Elliði Snær skoraði átta mörk í jafntefli Íslands
Fylgi flokkanna í Eyjum
Komu inn vegna veðurs
Afslættir hverfa með bættu raforkuöryggi
Jason Stefánsson meðal útskriftarnema FÍV 
Foreign Monkeys gefa út þriðju breiðskífu sína – „III“
Úttekt á fasteignagjöldum ársins
Mikil gróska í fimleikastarfi og mót framundan
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.