Drífandi frestar ekki verkfalli
Flóabandalagið og VR hafa frestað fyrirhuguðum verkföllum sem áttu að byrja næst komandi fimmtudag. Drífandi hefur ekki frestað boðuðu verkfalli sem á að byrja á miðnætti aðfaranótt fimmtudagsins 28. maí en þetta kemur fram í tilkynningu sem Drífandi sendi frá sér
Hér má lesa tilkynninguna í heild sinni;
Flóabandalagið og VR hafa frestað fyrirhuguðum verkföllum sem áttu að byrja n.k. fimmtudag. Drífandi hefur EKKI frestað boðuðu verkfalli sem á að byrja á miðnætti aðfaranótt fimmtudagsins 28. maí.
Við vitum lítið hvað er verið að bjóða þessum félögum en það hlýtur að vera gott tilboð, fyrst þau fresta verkfallsaðgerðum? Ekki hefur verið boðað til fundar milli samninganefndar Drífanda og atvinnurekenda og á meðan stendur boðað verkfall í Vestmannaeyjum n.k. fimmtudag.

Nýjustu fréttir

Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu
Fimmti sigur ÍBV í röð kom gegn Gróttu
250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað
SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Að kveikja neistann – að vekja áhuga og ástríðu barna í námi og skólastarfi  
Eyjaperlur í Eldheimum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.