Um 75% sjúkrarýma á Suðurlandi lokast komi til verkfalls Fíh
Nú hefur verkfall BHM staðið í um 8 vikur. Verkfallið hefur þegar haft veruleg áhrif á daglega starfsemi stofnunarinnar. Starfsemi rannsóknarstofunnar hefur dregist saman um 70% í apríl og maí vegna verkfalls ífeindafræðinga. Engar rannsóknir eru framkvæmdar á röntgendeildinni nema í bráðatilfellum að fenginni undanþáguheimild eða vegna útkalla bakvaktar eftir kl. 16:00 á daginn, vegna allsherjarverkfalls geislafræðinga. Alls hefur HSU á Selfossi og í Vestmannaeyjum fengið 30 undanþáguheimildir vegna myndgreiningarannsókna auk bráðatilvika til myndgreininga, en að öðru leyti liggur starfsemi röntgendeildarinnar niðri. Einnig hafa 55 undanþágur verið veittar vegna blóðrannsókna sem ekki þola bið.
Ljóst er að verkfallið er þegar farið að hafa alvarleg áhrif á framvindu meðferðar margra sjúklinga sem þurfa að þola bið eftir svörum sem varða næstu skref í meðferð þeirra. Ástandið er því orðið grafalvarlegt og óvíst hvert raunverulegt ástand sjúklinga er sem enn bíða eftir rannsóknum. Eins ríkir óvissa um hvaða áhrif töf á því að komast til meðferðar mun hafa í för með sér fyrir sjúklinga.
Til viðbótar við verkfallsástandið sem nú ríkir hefur verið boðað til í allsherjarverkfalls hjúkrunarfræðinga frá og með 27. maí. Verkfall hjúkrunarfræðinga yrði HSU geysilega erfið viðbót við yfirstandandi verkföll lífeinda- og geislafræðinga og ljósmæðra. Komi til þess verkfalls getur skapast áhætta fyrir sjúklinga ef töf verður á þjónustu og úrvinnslu undanþágubeiðna fyrir bráðveika sjúklinga. �?ví er alveg ljóst að allsherjarverkfall hjúkrunarfræðinga mun draga úr getu HSU til að sinna þörfum sjúklinga og meðhöndla einkenni. �?að mun skapa verulega ógn við öryggi sjúklinga.
Nú er ljóst að loka þarf um 75% allra sjúkrarýma á Selfossi og í Vestmannaeyjum. Á Selfossi verða opin 5 rúm af 18 sjúkrarúmum en áfram eru öll 40 hjúkrunarrými opin. Í Vestmannaeyjum verða um 4 rúm af 15 sjúkrarúmum opin, en þegar eru þar fyrir sjúklingar sem eru í biðplássi eftir hjúkrunarrými. �?ar eru áfram opin 7 hjúkrunarrými. Allir sjúklingar sem eru í virkri meðferð verða áfram á sjúkrahúsunum, en ekki verður möguleiki að taka við nýjum sjúklingum nema í bráðatilfellum. Bráðadeildir á Selfossi og í Vestmanneyjum verða opnar. Eins verður sótt um undanþágu til að veita göngudeildarþjónustu fyrir blóðskilunarsjúklinga á Selfossi og krabbameinssjúklinga í Vestmannaeyjum. �?jónusta í heimahjúkrun á Suðurlandi verður óbreytt að mestu.
Sjúklingar sem eiga bókaðan tíma á heilsugæslu eru beðnir um að fylgjast með framvindu verkfallsins, en þjónustu hjúkrunarfræðinga á heilsugæslu verður forgangsraðað. Við óttumst það ástand sem gæti skapast en munum tryggja alla neyðarþjónustu eins og kostur er. Aðgerðir eru í fullum undirbúningi á HSU til að bregðast við yfirvofandi verkfalli. Samningsaðilar eru hvattir til að leysa kjaradeilur heilbrigðisstétta sem fyrst og ganga hratt til samninga svo forða megi því að skaði hljótist af fyrir sjúklinga. Komi til verkfalls hjúkrunarfræðinga mun það hamla getu okkar til að bregðast við ástandi sjúklinga og veita viðunandi meðferð í tæka tíð. Ástandið í heilbrigðiskerfinu einkennist nú af gífurlegri óvissu sem veldur mikilli áhættu og ljóst er að það mun taka langan tíma að vinna upp þær afleiðingar sem núverandi verkföll hafa þegar haft fyrir sjúklinga.

Nýjustu fréttir

MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.