�?t af með aðkomumenn!
�?g hætti seint að undrast stórkarlalegar yfirlýsingar bæjarstjórans í Vestmannaeyjum í tilefni af því að nauð rak mig til að selja eignarhlut minn í útgerðarfélaginu Bergur-Huginn ehf. �?g hef starfað við þessa útgerð í yfir 40 ár. �?að var því ekki með glöðu geði að ég seldi hlut minn í félaginu þegar gamli Landsbankinn knúði mig til greiða fyrir ónýt hlutabréf í þessum sama banka. �?að var búið að reyna allt til að fá bankann til að hægja á sér.
Kvóti til Eyja
Bergur-Huginn ehf. er öflugt félag hér í Vestmannaeyjum meðal annars vegna þess að á árunum 1996-2009 keypti félagið 4.740 tonna aflaheimildir í botnfiski. Keyptur kvóti var þannig í reynd um eða yfir 80% af aflaheimildum félagsins. �?essar aflaheimildir voru keyptar í 21 viðskiptum og að langmestu leyti af útgerðaraðilum í öðrum byggðarlögum.
�?g man ekki til þess að bæjarstjórinn hafi gert athugasemdir við þau viðskipti. Bæjarstjórinn hefur nú í á þriðja ár haldið því fram að ég hafi selt kvótann frá Vestmannaeyjum. �?etta er auðvitað rangt því ég seldi félagið árið 2012 og það gerir enn út frá Vestmannaeyjum eins og ekkert hafi í skorist. Ekki er það fyrir orð bæjarstjórans heldur af því að Vestmannaeyjar eru frábær útgerðarstöð með afbragðs sjómenn, fiskverkendur og þjónustufyrirtæki. �?að er því undrunarefni að bæjarstjórinn og aðrir bæjarfulltrúar skuli ekki bjóða nýja og öfluga eigendur velkomna til starfa í Vestmannaeyjum og leggja frekar grunninn að góðu samstarfi í stað þess að ala á tortryggni og óvild.
Tvískinnungur bæjarstjórans
�?að er ótrúleg einangrunarhyggja og ámælisverð varðstaða um þrönga sérhagsmuni að bæjarstjórinn fari hamförum gegn því að utanbæjarmenn fái fjárfest og starfað hér í bænum. Krafa hans er sú að eingöngu útgerðarfélög í Vestmannaeyjum megi kaupa ráðandi hluti í öðrum útgerðarfélögum í bænum. Á endanum kynnu þóknanlegir kaupendur því aðeins að vera einn eða tveir! Engar athugasemdir heyrast frá bæjarstjóranum þegar þessir aðilar kaupa félög í öðrum bæjarfélögum. Viðskiptabannið er víst aðeins á aðra hliðina. Tvískinnungurinn sem birtist í þessum málflutningi er bæjarstjóranum ekki til framdráttar.
Afstaða hans þjónar í ofanálag alls ekki hagsmunum Eyjamanna til langs tíma. Skipulag í kringum veiðar og vinnslu sjávarfangs hefur verið forsenda þess að viðhalda hér samkeppnishæfu atvinnulífi. Að ýta undir óánægju og tortryggni í garð sjávarútvegsins eykur óvissu í rekstri og setur framtíðaruppbyggingu í uppnám. �?að er ekki í þágu sjávarbyggða í kringum landið að ýta enn frekar undir pólitíska óvissu um fyrirkomulag fiskveiða. Bæjarstjórinn er frekar að hugsa um sína pólitísku stundarhagsmuni en hagsmuni bæjarfélaga eins og Vestmannaeyja til langs tíma.
Bjóðum fólk velkomið
Er ekki kominn tími til að velviljaðir menn sýni bæjarstjóranum fram á að hann gæti hagsmuna bæjarins best með því að bjóða fólk með mikla reynslu af rekstri sjávarútvegsfyrirtækja ofan af landi velkomið til starfa í Vestmannaeyjum? Auðvitað er samkeppni milli bæjarfélaga um fjárfestingar og staðsetningu atvinnurekstrar. Sjálfur hefði ég getað flutt starfsemi Bergur-Huginn ehf. hvert á land sem var meðan félagið var í minni eigu og minnar fjölskyldu. �?að kom hins vegar aldrei til greina því hér er ákjósanlegur staður til að gera út. �?að er mikilvægt að tryggja að svo verði áfram og við treystum áframhaldandi festu í starfsemi fyrirtækja í sjávarútvegi. �?að hlýtur að vera mikilvægur mælikvarði á frammistöðu eins bæjarstjóra hvort honum tekst að láta aðkomumönnum líða eins og heimamenn væru. �?g trúi að það skipti máli.

Nýjustu fréttir

Ekkert áframhaldandi flug
Aleksandar Linta nýr þjálfari Eyjamanna 
Ágúst Gísli kom, sá og sigraði
Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp
Sundlaugin opnar á ný
ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.