Tekist á um úthlutun á kvóta þar sem veiðireynsla var sniðgengin

Mál Ísfé­lagsins og Hug­ins ehf. gegn ís­lenska rík­inu, til viður­kenn­ing­ar á bóta­skyldu rík­is­ins vegna ákvörðunar Jóns Bjarnasonar, þáverandi sjáv­ar­út­vegs­ráðherra um út­hlut­un mak­ríl­kvóta árið 2011, voru tek­in fyr­ir í Héraðsdómi Reykja­vík­ur á mánudag.

Mál­un­um var báðum frestað til hausts að beiðni lög­manna út­gerðanna. Mál­in voru höfðuð í maí síðastliðnum til viður­kenn­ing­ar á bóta­skyldu rík­is­ins vegna ákvörðunar sjáv­ar­út­vegs­ráðherra um að ráðstafa aðeins hluta heild­armakrílafl­ans til skipa sem höfðu sam­fellda veiðireynslu á ár­un­um 2008 til 2011.
Frá þessu er sagt í Morgunblaðinu en útgerðirn­ar telja skip sín hafa upp­fyllt laga­skil­yrði um sam­fellda veiðireynslu og því hafi ráðstöf­un ráðherra verið ólög­leg. Hon­um hafi borið að taka til­lit til veiðireynslu skip­anna og deila út kvóta í sam­ræmi við laga­ákvæði um tak­mörk­un veiða á deili­stofn­um að því er fram kem­ur í um­fjöll­un Morgunblaðsins.
Umboðsmaður Alþingis staðfesti í áliti sínu frá árinu 2012 að ákvörðun ráðherra um að hlutdeildarsetja ekki makrílinn frá árinu 2011 hefði ekki verið í samræmi við lög, skip sem stunduðu veiðar á makríl á árunum 2008 til 2011 hefðu samfellda veiðireynslu í skilningi laga.
Um mikla hagsmuni er að ræða bæði í tekjum og atvinnu og var það skaði fyrir fyrirtæki Vestmanneyjum, sem eru frumkvöðlar í makrílveiðum og vinnslu þegar ráðherra ákvað að úthluta makríl til skipa og báta sem enga veiðireynslu höfðu.

Nýjustu fréttir

Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi
Þrjár uppsagnir hjá Vestmannaeyjabæ úrskurðaðar ólögmætar
Skráning hafin fyrir hrekkjavökuna
Laxey meðal þátttakenda á Lagarlífi í Hörpu
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.