Lögreglan biður fólk að fara varlega
Á facebook síðu Lögreglunnar í Vestmannaeyjum biður lögreglan fólk að fara varlega vegna mikils fjölda í bænum þar sem börn eru í miklum meirihluta. Tilkynninguna má lesa hér:
Viljum við koma með smá ábendingu til allra sem eru í umferðinni í Vestmannaeyjum núna og næstu daga. �?ar sem Orkumótið stendur yfir núna og bærinn er fullur af fólki og börnum biðjum við ökumenn að fara varlega og sýna ítrekastu varúð í umferðinni. Fylgjast vel með umferðarmerkjum og reyna að draga úr hraðanum og að vera góðar fyrirmyndir og nota öryggisbelti.
Förum varlega í umferðinni og sýnum tillitssemi.
�?að var eitt umferðaróhapp í dag þar sem Stöðvunarskylda var ekki virt, það er einum of mikið.
Eigið góða helgi öll sömul.
STOP – Stöðvunarskylda
�?etta er ansi merkilegt merki og bregður fyrir á gatnamótum. �?að er 15.000 króna sekt fyrir að fara ekki eftir því og 2 punktar á ökuferlisskrá. Stöðvunarskylda þýðir einfaldlega að þú eigir að stöðva bifreiðina alveg áður en þú heldur áfram. Samt freistast margir til að hægja á sér og halda áfram ef þeir telja það öruggt.
Lögreglan ætlar að deila með ykkur smá ráði þegar þið komið að slíku merki sem kemur í veg fyrir að þið fáið slíka sekt. Hugsið merkið sem rautt ljós og stöðvið alveg. Ekki fyrr en þið eruð stopp skuluð þið horfa á umferðina um gatnamótin áður en þið akið áfram. �?annig er það hugsað og það er rétt aðferð.
Stöðvunarskylda er notuð á gatnamótum ef biðskylda er ekki talin nægilega örugg. Fyrir því geta verið nokkrar ástæður. Tíð slys eða skert útsýni eru þær helstu.

Nýjustu fréttir

Sveiflur í veðri og ógnar brim
Gul viðvörun – Austanhríð
Kristín Klara lék í sigri Íslands á Serbíu
Þar sem andinn er góður og stemningin í klefanum frábær
Bílaumboðið Una selur XPENG bíla á Íslandi 
Árni Árnason – Þurrabúðarlíf í Eyjum um aldamótin 1900
34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.